Geðsvið án sálfræðinga ef starfandi verða veikir Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. mars 2017 10:00 Geðdeild Landspítalans. Veikist sálfræðingur á geðdeild Landspítalans er ekki hægt að ráða inn tímabundið sálfræðing í stað hans. Fréttablaðið/Eyþór
Geðsvið Landspítalans hefur ekki tök á að ráða tímabundið í stöður sálfræðinga þegar langtímaveikindi koma upp. Því geta einstaka deildir spítalans verið án sálfræðinga svo mánuðum skiptir. Nýlega kom þess staða upp á deild 33C á Hringbraut. „Þetta voru einhverjir mánuðir og það er óheppilegt,“ segir María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. Hún segir að ef sálfræðingur fer í barnsburðarleyfi eða launalaust leyfi þá beri spítalinn ekki kostnað af því og þá sé hægt að ráða tímabundið í staðinn. Í veikindum sé hins vegar ekki hægt að ráða fólk tímabundið.María Einisdóttir María segir það þó sannarlega vera uppleggið á geðsviðinu að vera með sálfræðing starfandi á öllum deildum og spítalinn vildi gjarnan hafa fleiri sálfræðinga starfandi. „Við erum með um 50 stöðugildi á öllum spítalanum, bæði vefrænu deildunum og geðdeildunum. Gunnar Hrafn Jónsson alþingismaður, sem var frá vinnu í byrjun árs vegna veikinda, gagnrýnir í Fréttablaðinu á laugardaginn að geðsvið Landspítalans veiti enga bráðaþjónustu á kvöldin og um helgar. „Fólk er því vinsamlegast beðið um að missa ekki vitið utan skrifstofutíma heldur harka af sér. Það er ólíðandi mannréttindabrot sem yrði ekki liðið ef um nokkurn annan sjúkdóm væri að ræða, til dæmis hjartasjúkdóm,“ segir Gunnar Hrafn. María bendir á að bráðaþjónustan hafi verið opnuð upp úr aldamótum. Engin bráðaþjónusta hafi verið í boði á geðsviði fyrir þann tíma. „Við vorum með rýmri opnun en eftir hrun fórum við í sparnaðarpælingar með því að þrengja opnunartíma,“ segir María. Nú séu geðdeildirnar með opna bráðaþjónustu frá 12 til 19 á virkum dögum og 12 til 17 um helgar. „Þetta gerðum við eftir að við höfðum skoðað hvenær flestar komur eru og við sáum að 90-95 prósent af þunganum er á þessum tíma,“ segir María. Þegar lokað er á bráðaþjónustu á Hringbraut geta sjúklingar leitað á bráðamóttökuna í Fossvogi. Vakthafandi geðlæknir fer þá á bráðamóttökuna í Fossvogi og veitir þjónustuna þar. „Þannig að það er sólarhringsþjónusta,“ segir María.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira