Teikning af Tinna og Tobba seldist á rúmar 50 milljónir Anton Egilsson skrifar 18. nóvember 2017 20:29 Teikningin sem seldist á uppboðinu í París í gær. Vísir/EPA
Teikning af blaðasnápnum Tinna og og hundi hans Tobba var seld á tæpa hálfa milljón dala eða rúmar 50 milljónir íslenskra króna á uppboði í París í gær. Sky greinir frá þessu. Teikningin sem um ræðir er úr bókinni Veldissproti Ottókars konungs sem kom út árið 1939 og var í eigu belgíska listamannsins Hergé, eða Georges Remi eins og hann hét í raun, sem gerði blaðamanninn snjalla ódauðlegan í bókum sínum. Ýmis verk eftir Hergé voru boðin upp á uppboðinu, þar á meðal bækur, rissmyndir og teikningar. Þar seldist einnig upprunaleg teikning Hergé úr Tinnabókinni Dularfulla stjarnan á rúmar 36 milljónir en á meðal þess sem seldist ekki var eintak af Tinnabókinni Eldflaugastöðin sem áritað var af bandarískum geimförum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að munir úr eigu Hergé tengdum Tinnabókunum seljast fyrir háa upphæð. Árið 2011 seldist teikning hans af bardagasenu úr bókinni Leyndarmál Einhyrningsins á rúmar 24 milljónir króna. Bækurnar um ævintýri Tinna er afar vinsælar um víða veröld en þær urðu alls 24 talsins og voru þýddar á yfir 90 tungumál. Hafa bækurnar selst í yfir 200 milljón eintaka um heim allan.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira