Fimm særðir eftir meint hryðjuverk í Kanada Samúel Karl Ólason skrifar 1. október 2017 11:12 Lögregluþjónar að störfum í Edmonton. Myndin kemur fréttinni ekki beint við. Vísir/AFP
Lögreglan í Edmonton í Kanada rannsakar nú meint hryðjuverk í borginni í nótt. Árásarmaður ók á lögregluþjón og stakk hann svo nokkrum sinnum og hljóp á brott. Seinna um kvöldið reyndu lögregluþjónar að stöðva manninn sem þá var á sendiferðabíl. Hann ók þó á brott. Eftir eftirför á miklum hraða velti árásarmaðurinn bílnum. Hann hafði þó ekið á fjóra gangandi vegfarendur á meðan á eftirförinni stóð. Árásarmaðurinn var handtekinn af lögreglu og ástand þeirra fjögurra sem hann ók á liggur ekki fyrir, samkvæmt frétt CBC. Lögregluþjónninn sem var stunginn mun lifa af. Fáni Íslamska ríkisins fannst í bílnum.„Við teljum að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki,“ sagði Rod Knecht, yfirmaður lögreglunnar í Edmonton. Hann tók þó fram að möguleikanum að fleiri hefðu komið að árásinni væri haldið opnum. Þá sagði Knecht að talið sé að maðurinn hafi reynt að aka á gangandi vegfarendur á meðan á eftirförinni stóð.Samkvæmt frétt BBC er árásarmaðurinn 30 ára gamall og er hann kunnugur lögreglu.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Sjá meira