Stjórnvöld á Haítí stofna nýjan her Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. júlí 2017 22:10 Stjórnvöld á Haiti bregðast við fréttum Sameinuðu þjóðanna með því að byggja upp her. Vísir/getty
Í tilkynningu frá Varnarmálaráðuneyti Haítí kemur fram að stjórnvöld ætli sér að stofna nýjan her að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Landið hefur verið herlaust í tuttugu ár. Ríkisstjórnin stendur fyrir herferð sem miðar að því að laða að konur og karla í nýjan her. Lagt er upp með að herinn verði skipaður fimm hundruð mönnum. Tilgangurinn með nýstofnuðum her er að gæta landamæra og aðstoða eyjarskeggja við tjón af völdum náttúruhamfara. Tilkynningin um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar kemur í beinu framhaldi af því að Sameinuðu þjóðirnar gáfu það út að þær hygðust yfirgefa eyjuna í október næstkomandi.Gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar óttast að herinn verði notaður sem vopn í höndum ráðandi afla.Vísir/gettyÓttast að hervaldið verði notað í pólitískum tilgangi Ekki eru allir fylgjandi nýjum her og telja margir að þessar fyrirætlanir séu glapræði í ljósi afleitrar efnahagsstöðu landsins. Gagnrýnendur telja að ráðlegra sé að efla þá löggæslu sem fyrir er í landinu. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar telja þetta skref afar varhugavert. Hervaldið yrði notað sem vopn í höndum ráðandi afla. Haítí hefur verið herlaust í tuttugu ár en einræðislegir fyrrum forsetar notuðu herinn til þess að brjóta á bak aftur pólitíska andstöðu. Í tilkynningu frá Varnarmálaráðuneytinu segir að starfið sé opið konum jafnt sem körlum á aldrinum 18-25 ára sem hafa lokið stúdentsprófi.
Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Fleiri fréttir Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Sjá meira