Rannsókn á barsmíðum lögregluþjóns opnuð aftur vegna myndbands Samúel Karl Ólason skrifar 13. júlí 2017 15:00 Lögregluþjónninn sló konuna ítrekað með kylfu.
Lögregluembætti DeKalbsýslu í Georgíu í Bandaríkjunum hefur opnað á nýjan leik rannsókn á handtöku heimilislausrar konu. Það var gert eftir að myndband af lögregluþjóni slá konuna ítrekað með kylfu var birt á Youtube. Konan var handtekin fyrir betl þann 4. júní. Í fyrstu hafði lögregluþjónninn P.J. Larscheid verið hreinsaður af ásökunum um ofbeldi í handtökunni á hinni 38 ára gömlu Katie McCray. Stacy Zachery náði myndbandi af handtökunni, en í fyrstu sýndi hún einungis vinum og fjölskyldu myndbandið. Samkvæmt New York Times birti sonur hennar myndbandið á Youtube um miðjan júní. Það var þó ekki fyrr en síðustu helgi sem lögregluembættið varð vart við myndbandið og því var rannsóknin opnuð á nýjan leik. Talsmaður lögreglunnar segir að Larscheid hafi verið vikið tímabundið úr starfi. Það sé þó ekki til marks um að hann hafi endilega gert eitthvað rangt. Það hafi verið gert meðan verið sé að skoða myndbandið og ganga úr skugga um að það sé í samræmi við frásögn hans af handtökunni.Samkvæmt lögregluskýrslu um handtökuna sagðist McCrary vera starfsmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Þá hafi hún veit lögregluþjóninum falskt skjaldarnúmer, svokallað. Hann mun þá hafa sagt henni að hægt væri að handtaka hana fyrir að þykjast vera lögregluþjónn. „Hún sagði að ég væri að þykjast vera lögregluþjónn og reyndi að grípa í lögregluskjöld minn,“ sagði Larscheid í skýrslunni. Þá segir hann að hún hafi neitað að leggjast niður og því hafi hann barið hana í vinstri fótinn. Á einum tímapunkti hélt McCrary í kylfu Larscheid og skipaði hann henni að sleppa, því annars myndi hann skjóta hana. Í samtali við New York Times sagði Zachery að allir íbúar hverfisins viti að McCrary eigi við geðræn vandamál að stríða. Zachery og ónefndur karlmaður heyrast nokkrum sinnum kalla til konunnar og biðja hana um að streitast ekki á móti.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Sjá meira