Hafna gagnrýni vegna andláts Xiaobo Samúel Karl Ólason skrifar 14. júlí 2017 07:35 Andófsmaðurinn, sem hafði verið að afplána ellefu ára fangelsisdóm fyrir undirróðursstarfsemi dó á sjúkrahúsi í Kína sextíu og eins árs að aldri. Vísir/EPA
Kínverjar hafa hafnað gagnrýni sem á þeim dynur nú víðs vegar að þess efnis að þeir hafi ekki leyft Nóbelshafanum Liu Xiaobo að yfirgefa heimaland sitt og leita sér lækningar við lifrarkrabbameininu sem dró hann til dauða í gær. Andófsmaðurinn, sem hafði verið að afplána ellefu ára fangelsisdóm fyrir undirróðursstarfsemi dó á sjúkrahúsi í Kína sextíu og eins árs að aldri. Nóbelsnefndin hefur til að mynda tekið þátt í gagnrýninni og segir í yfirlýsingu frá henni að kínversk stjórnvöld beri mikla ábyrgð á dauða hans. Kínverjar segja hins vegar á móti að um innanríkismál sé að ræða sem komi utanaðkomandi aðilum ekki við og að gagnrýnin sé óviðeigandi. Lítið sem ekkert hefur verið sagt frá fráfalli Xiaobo í fjölmiðlum í Kína, samkvæmt frétt BBC. Þær fáu fréttir sem hafa verið birtar eru flestar á ensku og í einnig þeirra, frá Global Times, segir að Xiaobo hafi verið „fórnarlamb“ og hann hafi verið „afvegaleiddur af vestrinu“. Þá virðist sem að umræður um Xiaobo á samfélagsmiðlum hafi verið fjarlægðar af yfirvöldum. Vinum hans hefur verið skipað að halda ekki minningarathafnir og heimildarmaður BBC segir að einhverjir vinir hans hafi þegar verið handteknir. Liu Xia, eiginkona Xiaobo, er í stofufangelsi í Kína, en ríki eins og Þýskaland, Bretland, Frakkland og Bandaríkin hafa nú farið fram á að henni verði sleppt og leyft að fara til þess lands sem hún vill. Yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, Zeid Ra‘ad Al Hussein, segir einnig að hún eigi að njóta ferðafrelsis.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira