Framkvæmdastjóri Costco: „Fullt af fólki eins og við var búist“ 23. maí 2017 11:02 Frá röðinni fyrir utan Costco í morgun. Vísir/Eyþór „
Þetta hefur verið frábært,“ segir Brett Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á Íslandi, um opnun vöruhúss bandaríska verslunarrisans Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun. Verslunarrisinn hafði búist við töluverðum fjölda þegar hleypt var inn í verslunina um klukkan níu og höfðu meðlimir hjálparsveitar skáta í Garðabæ verið fengnir á svæðið til að stýra umferð. Forsvarsmenn Costco útilokuðu í samtali við fréttastofu í gær ekki að opna vöruhúsið klukkan átta í morgun, þ.e. klukkustund fyrr en auglýst hafði verið. Planað var að gera það ef fjöldinn yrði afar mikill fyrir klukkan átta. Ekki kom til þess.Á annað hundruð manns voru í röðinni þegar verslunin opnaði klukkan 9 í morgun.Vísir/EyþórÞað mættu þó ekki í nánd eins margir og sumir höfðu gert sér í hugarlund en Vigelskas segist hins vegar vera himinlifandi með opnunina. Einföld röð myndaðist fyrir utan Costco og voru á annað hundruð manns í henni um klukkan níu í morgun. „Þetta voru frábærar viðtökur,“ segir Vigelskas og segir þessa opnuna á pari við aðrar í Evrópu. „Fullt af fólki eins og við var búist.“ Hann segir að ekki hafi komið til þess að meðlimir hjálparsveitar skáta þyrftu að stýra umferð sérstaklega, en þeir muni þó standa vaktina frá deginum í dag og til sunnudags. Á því tímabili á hann von á stöðugri umferð í verslunina. Um fjörutíu þúsund manns hafa sótt um aðildarkort hjá versluninni hér á landi.Loftmynd af bílastæðinu við Costco í Kauptúni í morgun.Vísir/Eyþór.
Tengdar fréttir Undirbúningur opnunarinnar í þrjú ár Viðskiptavinir Costco, sem opnar verslun sína í dag, geta átt von á því að það verð sem boðið er upp á í dag haldist áfram. Ekki sé um opnunartilboð að ræða. 23. maí 2017 07:00 Svæðisstjóri Costco: „Þetta er stærsta opnunin frá því við komum til Evrópu árið 1993“ Verslunarrisinn Costco hefur selt 35 þúsund aðildarkort að versluninni. 21. maí 2017 20:46 Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira
Undirbúningur opnunarinnar í þrjú ár Viðskiptavinir Costco, sem opnar verslun sína í dag, geta átt von á því að það verð sem boðið er upp á í dag haldist áfram. Ekki sé um opnunartilboð að ræða. 23. maí 2017 07:00
Svæðisstjóri Costco: „Þetta er stærsta opnunin frá því við komum til Evrópu árið 1993“ Verslunarrisinn Costco hefur selt 35 þúsund aðildarkort að versluninni. 21. maí 2017 20:46