Nennir ekki að svara nettröllum, þó þau detti inn á þing Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2017 21:58 Smári McCarhy og Sigmundur Davíð. Vísir/Stefán/Auðunn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir langt síðan hann hafi hætt að nenna „að svara nettröllum, jafnvel þótt þau detti inn á Alþingi“. Hann segir þingmannastarfið fela í sér mun meira en að sitja allan daginn í sófunum í þinghúsinu. Þeir þingmenn sem telji svo vera séu ekki að vinna vinnuna sína. Mæting Sigmundar á Alþingi hefur verið til umræðu í dag en Sigmundur segir að eiginkonu sinni hafi þótt undarlegt að „kunnuglegir hrekkjalómar“ og „varaþingmaður Pírata“ væru að halda því fram að hann sinnti ekki vinnunni. Hún hefði nýverið spurt hann hvort hann væri búinn að gleyma því að hann ætti fjölskyldu.Sjá einnig: Krossbregður þegar hann sér Sigmund Davíð í þinghúsinu Í pistli á Facebook skrifar Sigmundur einnig að þrátt fyrir að nú séu áhugaverðir tímar í stjórnmálum endurspegli þingstörfin það ekki. „Við stjórnvölinn er ríkisstjórn sem hefur einstaklega lítið fram að færa og hinum megin sundurlaus stjórnarandstaða sem veltir helst fyrir sér hvaða pólitísku leikatriði sé hægt að setja á svið þann daginn. -Æsa sig yfir einhverju aukaatriði sem engu máli skiptir í umræðu um fundarstjórn forseta eða leggja fram ályktun um að þingmenn meirihlutans mæti ekki nógu vel á nefndarfundi (þótt sumir þeirra eigi að vera á tveimur nefndarfundum samtímis).“ Þá segir Sigmundur að lítið hafi verið um þingfundi á árinu þar sem atkvæðagreiðslu um einhvern fjölda mála hafi farið fram. „Auðvitað þykir manni vænt um það ef kollegar sem hafa ekki nóg að gera sakna manns. En það er samt ekki fallegt að skilja aðra út undan. Hver man t.d. ekki eftir áfallinu sem tveir af brottföllnum þingmönnum Samfylkingarinnar urðu fyrir þegar ég tók mér þriggja daga frí með fjölskyldunni á síðasta kjörtímabili. Á meðan hverfa aðrir ráðherrar vikum saman án þess að vera saknað. Það hlýtur að vera leiðinlegt, getur jafnvel vakið höfnunartilfinningu.“ Sigmundur segist hafa unnið sem þingmaður á hverjum einasta degi ársins nema á nýársdegi, páskadegi og öðrum degi páska. „Þótt það geti verið áhugavert að bera saman hversu lengi hver og einn situr í þinghúsinu er líklega réttara að bera saman þann árangur sem menn skila. Ég er alltaf til í þann samanburð við hvern sem er.“Ekki varaþingmaður Þar sem Sigmundur vísar til nettrölls sem dettur inn á þing og varaþingmann Pírata, er hann líklegast að vísa til Smára McCarthy, þingmanns Pírata, sem sagði í dag að honum krossbrygði í hvert sinn sem hann sæi Sigmund í þinghúsinu. Hann svaraði Sigmundi á Facebook. „Ef þú mættir aðeins oftar, eins og lög kveða á um, þá myndirðu vita að ég er ekki varaþingmaður. Öll sinnum við fundum og ýmiskonar störfum þingmanna langt frá Austurvelli (í augnablikinu er ég að sinna þingstörfum í 7400km fjarlægð frá Austurvelli, til dæmis), en flestir þingmenn sjá sér samt fært að mæta á nefndarfundi og atkvæðagreiðslur, þó ekki sé annað.“
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira