Ók á um 200 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2017 10:35 Mannsins bíður ákæra fyrir háskaaksturinn. Vísir/Eyþór
Lögregla á Suðurnesjum stöðvaði um helgina bíl sem ekið var eftir Reykjanesbraut á 196 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að ökumaðurinn hafi verið skiptum réttindum ótímabundið en um var að ræða tæplega fimmtugan karlmann. Hans bíður ákæra fyrir háskaaksturinn. „Fáeinir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir of hraðan akstur, þar á meðal 17 ára piltur sem mældist aka á 159 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk sektar fyrir brotið og refsipunkta í ökuferilsskrá gerði lögregla barnaverndarnefnd viðvart,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan á Suðurnesjum handtók einnig nokkra ökumenn um helgina vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. „Tveir þeirra reyndust aka sviptir ökuréttindum og sá þriðji hafði aldrei öðlast slík réttindi. Einn þessara þriggja var með fíkniefni í fórum sínum þegar hann var handtekinn. Þá var einn ökumannanna, grunaður um ölvunarakstur, 17 ára og var því brot hans tilkynnt barnaverndarnefnd.“Rotaðist þegar hann féll af reiðhjóli Í tilkynningu segir jafnframt að karlmaður hafi rotast þegar hann féll af reiðhjóli sínu á Krísuvíkurvegi um helgina. „Hann hjólaði á grjót með þeim afleiðingum að hann skall í malbikið. Hann hlaut m.a. meiðsl í andliti og var fluttur á Landspítala til aðhlynningar. Þá meiddist ökumaður þegar bifreið hans fór utan í vegrið á Reykjanesbraut og endaði utan vegar. Hann fann til verkja og var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.“
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Brotist inn og peningaskápur tekinn Innlent Fleiri fréttir „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum Sjá meira