Með okkar augum hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2017 12:00 Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag . Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag dagskrárgerðarfólki og hugmyndasmiðum sjónvarpsþáttanna Með okkar augum Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2017 á mannréttindadegi Reykjavikurborgar. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að þáttaröðin hafi verið sýnd á RÚV síðastliðin sex ár og stuðlað að vitundarvakningu um stöðu fólks með þroskahömlun, getu þess, skoðanir og langanir. „Með umfjöllun sinni hefur þáttastjórnendum tekist að auka skilning á réttindum fatlaðs fólks. Þau Andri Freyr Hilmarsson, Eiður Sigurðsson, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Skúli Steinar Pétursson, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Elín Sveinsdóttir, upptökustjóri veittu verðlaununum viðtöku. Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að dagskrárgerðarfólkið sem stæði að gerð þáttanna verðskuldaði verðlaunin því með umfjöllun sinni hafi þau aukið skilning á réttindum fatlaðs fólks. Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.“ Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.Tjörnin hlýtur Hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Elín Oddný Sigurðardóttir, formaður mannréttindaráðs afhenti forstöðumönnum Tjarnarinnar frístundamiðstöðvar hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, en verðlaunin eru nú veitt í fyrsta sinn. „Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir þróunar- og nýbreytni í starfi einstaklinga, borgarstofnana og fyrirtækja á sviði mannréttindamála. Tjörnin hlýtur verðlaunin fyrir að standa að réttindagöngu barna.Réttindaganga barna er farin árlega í tilefni af barnaréttindaviku allra frístundaheimila í Hlíðum, Miðborg og Vesturbæ. Hún er lokahnykkur vikunnar þar sem lögð er áhersla á fræðslu um réttindi barna, Barnasáttmálann, lýðræðisleg vinnubrögð og að kenna börnunum að þekkja mun á réttindum og forréttindum. Gangan gefur börnum tækifæri til að fagna réttindum sínum og er verkefnið liður í því að styrkja rödd barna og gera þau meðvituð um réttindi sín og annarra,“ segir í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Fleiri fréttir „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum Sjá meira