Magðalena Níelsdóttir, er móðir drengsins. Hún bjó í Svíþjóð ásamt syni sínum, Emil Kára Peterson, en hún og sænskur faðir drengsins voru með sameiginlegt forræði.
Í nóvember 2015 sagðist Magðalena ætla í frí með drenginn og ekkert hefur spurst til mæðginanna síðan.
Stjúpmóðir Emils, Erika Nilsson, hefur síðustu vikuna verið á Íslandi til að setja sig í samband við lögregluyfirvöld, dreifa miðum í póstkassa og hengja upp plaköt. En hún hefur engar vísbendingar fengið um hvar Emil og móðir hans eru stödd.

Lögreglan í Svíþjóð telur líklegt að móðirin feli sig á Íslandi en það finnst íslenskum lögregluyfirvöldum ólíklegt nema hún haldi sig innandyra með drenginn öllum stundum. Emil er með sjaldgæfan meltingafærasjúkdóm og þarf að vera undir reglulegu eftirliti sérfræðinga.
„Ég hef áhyggjur af heilsu hans, að hann sé ekki undir eftirliti. En ég hef líka áhyggjur af félagslegum og andlegum þroska hans, því ef þau eru í felum þá gengur hann ekki í leikskóla eða skóla, og er ekki að leika með öðrum börnum," segir Erika.
Á morgun á Emil afmæli og verður sex ára gamall.

Fjölskyldan hefur sett upp heimasíðu og hægt er að koma upplýsingum þangað eða beint til lögreglu.
Ef einhver getur látið okkur vita að hann sé í lagi eða jafnvel á lífi, því það vitum við ekki, þá væri það svo gott. Jafnvel þótt það væri nafnlaus ábending - bara að fá að vita eitthvað um hann," segir Erika sem fer aftur til Svíþjóðar á laugardaginn.
Viðtal við Eriku má sjá í spilaranum hér að ofan.