Segja sameiningu soga þjónustu til Siglufjarðar Sveinn Arnarsson skrifar 25. apríl 2017 07:00 Grunnskólinn í Ólafsfirði. Til stendur að flytja yngsta stig skólans til Siglufjarðar. Foreldrar eru ekki sáttir. Vísir/Sveinn
Sextíu nemendur grunnskólans í Ólafsfirði mættu ekki til kennslu í gær vegna mótmæla foreldra þeirra. Til stendur að flytja yngsta stig grunnskólans til Siglufjarðar en foreldrar í Ólafsfirði mótmæla því harðlega. „Þegar sveitarfélögin sameinuðust í Fjallabyggð var talað um að jafnvægi þyrfti að vera milli byggðakjarnanna. Mikilvægt væri að ekki hallaði á neinn aðila. Nú er tilfinningin sú að verið sé að þröngva þessu í gegn hvort sem okkur líkar það betur eða verr,“ segir Hildur Gyða Ríkharðsdóttir, móðir í Ólafsfirði. Margir íbúar Ólafsfjarðar eru ósáttir við að Siglufjörður virðist draga að sér alla opinbera þjónustu á kostnað Ólafsfjarðar. Við sameiningu sveitarfélaganna var áhersla lögð á að styrkja bæði byggðarlögin en Ólafsfirðingar telja það hafa gleymst. „Grunnskóli er hjarta bæjarins og fólk velur sér búsetu eftir því hvernig þjónustan er á hverjum stað. Eftir stendur fátt sem við höfum og margt flutt yfir á Siglufjörð. Ef fram heldur sem horfir mun fólk aðeins flytjast til Siglufjarðar þar sem þjónustan er. Það er mjög alvarlegt,“ bætir Hildur Gyða við. Í nýrri skólastefnu Fjallabyggðar er lagt til að yngri hluti grunnskólans verði á Siglufirði en eldri hlutinn í Ólafsfirði. Bæjarfélagið á við það vandamál að stríða að í báðum byggðarlögunum eru fullgerðir leikskólar með allt til alls en einvörðungu um 200 grunnskólabörn í það heila. Til að nýta skólahúsnæðið þarf því að skipta starfinu milli skólanna. Einnig hefur bæjarfélagið lagt mikla áherslu á að blanda börnum beggja byggðalaga saman. Jón Valgeir Baldursson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Fjallabyggð, var sá eini sem gagnrýndi þennan ráðahag. „Engin umræða hefur farið fram um málið og íbúar hafa ekki verið spurðir álits á þessum gjörningi. Því gat ég ekki samþykkt þetta,“ segir Jón Valgeir. Ekki náðist í Steinunni Maríu Sveinsdóttur, formann byggðaráðs Fjallabyggðar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Fleiri fréttir Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjá meira