Meiri afgangur af rekstri ríkissjóðs en áður var ráðgert Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 26. mars 2017 21:26
Ríkisstjórnin mun leggja sérstaka áherslu á heilbrigðismál í fjármálaáætlun sem kynnt verður í næstu viku. Þetta segir fjármálaráðherra. Gert sé ráð fyrir meiri afgangi af rekstri ríkissjóðs en áður var ráðgert. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður kynnt á föstudag en um er að ræða eitt mikilvægasta ef ekki mikilvægasta stefnumál hverrar ríkisstjórnar. Þar kemur í ljós meðal annars hversu mikið fjármagn verður sett í heilbrigðismál, menntamál og samgöngumál á næstu árum. Fjármálaráðherra segir tvennt koma til með að standa upp úr. „Það verður meiri afgangur heldur en áður, þ.e.a.s. við verðum með 1,6 prósent afgang af því opinbera, þar af 1,5 prósent hjá ríkinu,” segir Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra. Hins vegar segir Benedikt að bætt verði við fjármagni í tiltekna málaflokka.Það hefur verið kallað eftir auknum fjármunum í heilbrigðismálin, menntamálin og samgöngukerfið, svo dæmi séu nefnd. Er von á þeim fjármunum?„Ja, við getum sagt að það sé von á hluta af þessum fjármunum sem men hefðu gjarnan vilja sjá. Það er kannski fjarstæðan í ríkisfjármálunum núna, að í þessu mikla góðæri sem við höfum að þá er samt aldrei til nægur peningur í allt það sem maður gjarnan vildi gera,” segir Benedikt. Hann segir ríkisstjórnina leggja sérstaka áherslu á heilbrigðismálin í áætluninni. „Ég held að það sé reyndar samhljómur um það meðal landsmanna að það eigi að reyna að bæta þar úr eins og mögulegt er. Ég held að það sé mjög mikilvægt, allir sammála um það,” segir Benedikt. Hann vill ekki segja til um hvort von sé á meira fjármagni í menntamálin, til að mynda háskóla landsins. Þegar kemur að skuldum ríkissjóðs segir hann að gert sé ráð fyrir hraðri lækkun þeirra. „Ég held að það séu allir mjög sammála um að nýta þessu góðu ár sem við höfum til að borga niður skuldir. Og við erum þá betur stödd þegar að við lendum aftur í vandræðum einhvern tímann seinna, sem eflaust kemur að,” segir Benedikt.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Sjá meira