Tekinn með 10 lítra af 95 prósenta landa við aftursætið nærri Þorlákshöfn Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2017 12:29 Frá Þorlákshöfn. Vísir/Ölfus
Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði ökumann bifreiðar sem átti leið um Þorlákshafnarveg skammt frá Þórlákshöfn í gærkvöldi. Í viðræðum við ökumann veittu lögreglumenn athygli 10 lítra plastfötu á gólfi við aftursæti bílsins. Reyndist fatan full af 95 prósenta landa. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook en þar kemur fram að hún hafi sinnt 243 verkefnum í liðinni viku. Aðalþunginn var á umferðareftirlit, þar á meðal var farið í umfangsmikið verkefni með starfsmönnum ríkisskattstjóra sem fólst í eftirliti með ökumönnum hópferðabifreiða og hugað að rekstrarleyfum, aksturs- og hvíldartímum og fleira. Sautján umferðaróhöpp voru tilkynnt í umdæminu á þessu tímabili en í einu tilviki var um ölvunarakstur að ræða þegar ökumaður kastaðist úr bifreið sinni og fótbrotnaði eftir að hafa misst stjórn á bílnum sem valt á Hrunavegi skammt frá Grafarbakka aðfaranótt fimmtudags. Tilkynnt var um innbrot í sumarbústað við Laugarvatn og þjófnað á verkfærum. Farið var um nágrenni þess bústaðar til að athuga hvort brotist hafi verið inn í fleiri hús. Í ljós kom að farið hafði verið inn í einn bústað til viðbótar. Talið er að innbrotin hafi átt sér stað á tímabilinu frá 16. til 21. mars. Aðfaranótt miðvikudags var brotist inn í gám á Þingvöllum og úr honum stolið nokkuð af ýmsum verkfærum. Gámurinn er í eigu Ræktunarsambands Flóa og Skeiða sem er að bora eftir vatni á svæðinu.
Mest lesið Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Erlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Fleiri fréttir Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Sjá meira