Flestir á Vogi hafa notað mörg vímuefni Svavar Hávarðsson skrifar 10. mars 2017 07:00 Áfengissýki hefur lengi verið helsta viðfangsefnið á Vogi. vísir/heiða
Hlutfall þeirra sem voru fíknir í ólögleg vímuefni og leituðu sér lækninga á Sjúkrahúsinu Vogi fór á rúmlega tíu árum úr 18,5 prósentum af sjúklingahópnum í 49 prósent árið 2006. Sú staða hefur síðan lítið breyst og helmingur þeirra sem leita á Vog á hverju ári á við vandamál að stríða vegna fíknar í ólögleg vímuefni. Á tímabilinu frá 1994 til 2006, fjölgaði tilfellunum úr tæplega 300 á hverju ári í 907. Síðan hefur fjöldi tilfella lítið breyst og hlutfallið haldist það sama. Sjúkdómsgreiningar þar sem vandinn er bundinn við lyf, sem jafnframt eru vímuefni, hafa verið um 500 síðustu fimm árin, eða um 30 prósent.Þórarinn TyrfingssonÞetta kemur fram í nýútgefnu ársriti meðferðarsviðs SÁÁ 2016, en höfundur þess er Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri Sjúkrahússins Vogs. Þórarinn segir frá því hversu mikil breytingin var frá þeim tíma er SÁÁ var stofnað og byrjaði að bjóða áfengis- og vímuefnasjúklingum meðferð – þá var áfengi vímuefnið sem nær allir notuðu og áttu í vanda með. Á því voru þó vissulega fáeinar undantekningar. Einstaka sjúklingar voru fíknir í tvö vímuefni eða fleiri. „Síðan þá hafa fleiri og fleiri sjúklingar komið til meðferðar sem kalla má fjölfíkla, eða eru háðir fleiri en einu vímuefni, auk tóbaks. Mikil aukning varð á þessu á árunum 1983 til 1985 og svo aftur frá 1996 til 2000. Á Sjúkrahúsinu Vogi forðast læknar að nota fjölfíklagreininguna í vímuefnagreiningunni en greina þess í stað og nefna öll þau vímuefni sem sjúklingurinn er fíkinn í. Með þessu verða vímuefnagreiningarnar nákvæmar og samanburðarhæfari milli ára,“ segir Þórarinn. Í tölfræði SÁÁ fær helmingur sjúklinganna á Vogi aðeins eina vímuefnagreiningu, en árið 2015 fengu þrír af hverjum fjórum áfengisgreiningu, þrettán prósent fengu kannabisgreiningu og um tólf prósent lyfjagreiningu. Einn af hverjum fjórum sjúklingum á Vogi var fíkinn í þrjú eða fleiri vímuefni á Vogi árið 2015, en hafa ber í huga að þeir hafa notað miklu fleiri vímuefni en þeir greinast fíknir í, bætir Þórarinn við. „Vegna þess hversu algengt er að sjúklingar séu háðir fleiri en einu vímuefni er mikilvægt að greina hvaða vímuefni veldur mestum vanda hjá þeim.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira