Friðrik Þór og Elísabet Inga vilja formennsku í Heimdalli Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 2. mars 2017 19:50
Friðrik Þór Gunnarsson, nemi í hagfræði, býður sig fram í embætti formanns Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Elísabet Inga Sigurðardóttir, laganemi, býður sig fram í embætti varaformanns. Ásamt Friðriki Þór og Elísabetu Ingu bjóða sig fram til stjórnar tíu ungmenni á aldrinum 17 til 29 ára, sem hafa komið víða við í félags- og æskulýðsstarfi. Framboðið endurspeglar þá breidd sem Sjálfstæðisflokkurinn á að standa fyrir. Í tilkynningu segir að framboðið sé myndað um frjálslynd gildi og muni tryggja að rödd ungra sjálfstæðismanna heyrist innan sem utan flokksins. „Með þeirri frjálslyndu ríkisstjórn sem mynduð var í janúarmánuði skapaðist einstakt tækifæri til að gera persónu- og athafnafrelsi hátt undir höfði. Á fyrstu vikunum hefur þessum gildum strax verið teflt í tvísýnu. Verði listinn kosinn mun Heimdallur tryggja að frjálslyndum gildum Sjálfstæðisflokksins verði haldið að ríkisstjórninni. Að auki er mikilvægt að allt ungt, frjálslynt fólk í Reykjavík komi að opnum dyrum hjá Heimdalli. Ég geri ráð fyrir að kosningabaráttan verði heiðarleg og skemmtileg og ég hvet alla sem vilja taka þátt í starfi Heimdallar að hafa samband á Facebook-síðu framboðsins,” er haft eftir Friðriki Þór í tilkynningunni.Auk Friðriks Þórs og Elísabetar Ingu eru á listanum: Aron Freyr Lárusson, viðskiptafræðingur hjá Vodafone, nemi í verðbréfamiðlun og dyravörður. Einar Karl Jónsson, leikari við Borgarleikhúsið og nemi við Verzlunarskóla Íslands. Jafet Máni Magnúsarson, leikari og ritari skólafélags Menntaskólans við Sund. Jónína Sigurðardóttir, nemi í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands og formaður sviðsráðs menntavísindasviðs Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Kristín Lilja Sigurðardóttir, fyrirsæta og formaður femínistafélags skólafélags Menntaskólans við Sund. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, nemi við Verzlunarskóla Íslands og meðlimur í ritstjórn Verzlunarskólablaðsins. Oddur Þórðarson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík og starfsmaður Hagstofu Íslands. Steinar Ingi Kolbeins, nemi og Ármaður skólafélags Menntaskólans við Sund og sjónvarpsfréttaritari Nútímans. Vaka Vigfúsdóttir, dansari og nemi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Þorsteinn Friðrik Halldórsson, nemi í hagfræði við Háskóla Íslands, blaðamaður og ritstjóri Hjálma, tímarits hagfræðinema.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Sjá meira