Sjallar á Seltjarnarnesi sakaðir um einræðistilburði Jakob Bjarnar skrifar 9. mars 2017 10:09 Guðmundur Ari veltir því fyrir sér hvort hann þurfi yfirhöfuð að mæta á fund þegar niðurstaða hans er hvort sem er fyrirliggjandi. Ásgerður segir að um fullkomlega eðlileg vinnubrögð sé að ræða.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi fyrir Samfylkingu á Seltjarnarnesi, furðar sig á afgerandi vinnubrögðum meirihlutans. Með nýlegu fundarboði var send út fundargerð þar sem búið var að afgreiða öll mál og merkja við mætingu þeirra sem fundinn sátu. Það er áður en fundur var haldinn. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri segir um fullkomlega eðlileg vinnubrögð að ræða. Guðmundur Ari skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gærkvöldi þar sem hann veltir fyrir sér því hvernig það megi vera að hann hafi fengið senda fundargerð fundar sem hann átti eftir að sitja. „Fullkomlega eðlileg vinnubrögðin alltaf hjá Sjálfstæðisflokknum á Seltjarnarnesi. Flokkur með um 52% meirihluta sendir fulltrúum minnihlutans fundardagskrá fyrir fund bæjarráðs sem við eigum saman í fyrramálið þar sem búið er að afgreiða öll málin og hvernig unnið verður með þau áfram. Spurning hvort það taki sig að mæta, búið að merkja við mætingu hjá mér og allt!“Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi er afar röskur og til hagræðis er fundargerðin svo gott sem klár, áður en fundir fara fram.Með birtir Guðmundur Ari mynd af fundargerðinni, en er reyndar búinn að skyggja hluta þess sem þar kemur fram. Ásgerður bæjarstjóri er undrandi á þessum athugasemdum frá Guðmundi Ara því fundurinn var í morgun og að sögn bæjarstjórans fóru þar fram góðar umræður. Og hún segir samskipti sín og Guðmundar ávallt hafa verið góð. Ásgerður segir þetta gert til að auðvelda, til undirbúnings og hagræðis; svo fundurinn megi ganga sem best. „Bæjarstjóri undirbýr dagskrá gerir uppkast af fundargerð í hugsanlegri útfærslu og leggur fram. Flóknara er þetta ekki og svona hefur þetta alltaf verið,“ segir Ásgerður bæjarstjóri í samtali við Vísi. Og henni finnst þetta vart í frásögur færandi.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira