Árborg gert að greiða 24 milljónir vegna mistaka sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 22. febrúar 2017 14:11 Sveitarfélagið þarf að greiða bætur vegna formgalla á útboði á sorphirðu. vísir/pjetur
Sveitarfélaginu Árborg var í Héraðsdómi Suðurlands í gær gert að greiða Gámaþjónustunni tæplega 19 milljónir króna vegna mistaka þess við útboð á sorphirðu árið 2011. Árborg var jafnframt dæmt til að greiða Gámaþjónustunni 5,5 milljónir króna í málskostnað. Tveir skiluðu tilboðum í verkið; Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan, en Gámaþjónustan átti hagkvæmara tilboðið. Meirihluti bæjarráðs ákvað hins vegar að hafna þeim tilboðum sem bárust í verkið og taldi að færa mætti rök fyrir því að gallar kynnu að hafa verið á framkvæmd útboðsins. Jafnframt vísaði meirihlutinn til þess að kostnaður við lægsta tilboðið hafi verið yfir 13 milljónum krónum hærri fyrir árið 2012 en hann var árinu áður. Gámaþjónustan taldi ákvörðun meirihlutans um að hafna tilboðinu ólögmæta. Árborg hafi verið skylt að semja við fyrirtækið í kjölfar útboðsins og kvaðst hafa orðið fyrir tjóni vegna niðurfellingarinnar. Taldi Gámaþjónustan jafnframt að Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hafa verið óheimilt að taka þátt í ákvörðun bæjarráðs um að hafna tilboðinu. Hann sé bróðir rekstrarstjóra Íslenska gámafélagsins og að þarf af leiðandi hafi Gunnar verið vanhæfur við þessa ákvarðanatöku. Árborg mótmælti þessu, sem og að tilboðið væri ólögmætt, og sagði meðal annars að Gámaþjónustan hafi engin sönnunargögn lagt fram sem styðji það að fyrirtækið hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni. Héraðsdómur taldi ekki annað ráðið af gögnum málsins en að það hafi verið í kjölfar tölvupósts sem forsvarsmaður Íslenska gámafélagsins sendi bæjarstjórnarmanni í desember 2011, og að fengnu minnisblaði lögmannsstofu, sem ákveðið hafi verið á bæjarráðsfundi nokkrum dögum síðar að hafna öllum tilboðum í verkið. Var sveitarfélaginu Árborg þar af leiðandi gert að greiða Gámaþjónustunni skaðabætur og allan málskostnað, samtals rúmlega 24 milljónir króna.Dóminn má lesa í heild hér.
Tengdar fréttir Dómgreindarbrestur af hálfu bæjarstjórans að hygla fjölskyldunni Jón Þórir Frantzsson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, efast um hæfi Gunnsteins Ómarssonar, bæjarstjóra Ölfuss, við afgreiðslu sorphirðuútboðs í bænum þar sem útboðsgögnum er haldið leyndum. 3. september 2014 18:01 Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð. 3. september 2014 06:45 Ölfus þarf ekki að afhenda gögn Kröfu Íslenska gámafélagsins um að fá afhent gögn vegna útboðs um sorphirðu í Ölfusi í lok árs 2013 var hafnað í Héraðsdómi Suðurlands fyrir helgi. 4. febrúar 2015 07:00 Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira
Dómgreindarbrestur af hálfu bæjarstjórans að hygla fjölskyldunni Jón Þórir Frantzsson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, efast um hæfi Gunnsteins Ómarssonar, bæjarstjóra Ölfuss, við afgreiðslu sorphirðuútboðs í bænum þar sem útboðsgögnum er haldið leyndum. 3. september 2014 18:01
Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð. 3. september 2014 06:45
Ölfus þarf ekki að afhenda gögn Kröfu Íslenska gámafélagsins um að fá afhent gögn vegna útboðs um sorphirðu í Ölfusi í lok árs 2013 var hafnað í Héraðsdómi Suðurlands fyrir helgi. 4. febrúar 2015 07:00