FH-ingar vilja að bæjaryfirvöld staðfesti slit á samningaviðræðum Benedikt Bóas skrifar 27. febrúar 2017 07:00 FH-ingar hafa fagnað mikið innan vallar undanfarin ár. Sömu gleði er ekki að finna hjá bæjaryfirvöldum. vísir/ernir
Viðar Halldórsson, formaður FH, hefur óskað eftir formlegri staðfestingu á að samningar og viðræður um kaup Hafnarfjarðarbæjar á hlut í knatthúsunum Dverg og Risa sé lokið. Samningur um kaup bæjarins á 55 prósenta hlut í húsunum fyrir 200 milljónir króna var kynntur í lok janúar. Bæjarráð Hafnarfjarðar fól á fimmtudag Haraldi Haraldssyni bæjarstjóra að halda áfram með málið. „Varðandi frágang annarra samninga aðila væri gott að hafa hraðann á og ljúka þeim með formlegri undirskrift eða slitum,“ segir í bréfi Viðars til Haraldar. Á bæjarráðsfundi voru líka lögð fram bréf Viðars um að bærinn annars vegar aflétti veðsetningu á Kaplakrika sem stendur nú í tæpum 900 milljónum og hins vegar um meðferð gatnagerðargjalda vegna fyrirhugaðrar byggingar Skessunnar, 8.400 fermetra knatthúss og sjúkra- og hótelbyggingar. Fram kemur í bréfi Viðars að FH fær greitt samkvæmt óundirrituðum rekstrar- og þjónustusamningi við bæinn. Viðræður um hann hafa staðið yfir í rúma 18 mánuði. Biður formaðurinn um að annaðhvort verði þeir undirritaðir eða að farið verði eftir samningum sem verið hafi í gildi í vel á annan áratug.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Vilja fá valdið aftur Innlent Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Erlent „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Innlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Fleiri fréttir „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Sjá meira