Slökkviliðið treystir á 34 ára gamlan bíl Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. febrúar 2017 07:00 Aðalbíll slökkviliðsstöðvarinnar á Tunguhálsi er árgerð 1983. Bílarnir í Skógarhlíð eru yfir áratugagamlir. vísir/anton
Aðalbíll slökkvistöðvarinnar á Tunguhálsi í Reykjavík er frá árinu 1983 og því 34 ára gamall. Annar bíll sem slökkvistöðin hefur yfir að ráða, sem er frá árinu 1998, er í viðgerð á Ólafsfirði. Þar er verkstæði sem annast viðgerðir á slökkviliðs- og sjúkraflutningabílum. Þeir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn sem Fréttablaðið hefur rætt við furða sig á fréttum þess efnis að strætó hafi ákveðið að kaupa níu rafstrætóa frá Kína. Hins vegar sé ekki búið að ljúka við útboð á nýjum slökkviliðsbílum.Jón Viðar Matthíasson, slökkvliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins.vísir/stefán„Þetta er ófremdarástand. Ef við miðum við hin tæki byggðarsamlaganna, þá eru það fyrst og fremst þjónustubílar, strætisvagnar og sorphirðubílar. En þessir bílar sinna ákveðnu öryggi. Það er lífsnauðsynlegt að þessir bílar séu í lagi. Forgangsröðunin virðist vera svolítið öfugsnúin ef öryggistækin sem eru á ferðinni þegar eitthvað alvarlegt er að gerast eru svona öldruð. Það er óásættanlegt,“ segir hann. Ástandið er eitthvað skárra á stöðinni í Skógarhlíð. Jón telur að tveir yngstu bílarnir þar séu Scania-bílar frá árinu 2001 til 2003. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir undirbúning að kaupum á nýjum slökkviliðsbílum hafa verið í gangi í langan tíma. „En svo komu inn hrunárin, sem stoppaði þetta. Svo erum við að klára útboðslýsingarnar næstu daga,“ segir Jón Viðar. Ekki þurfi að líða meira en tvær til þrjár vikur þar til útboðslýsingarnar verða tilbúnar. Jón Viðar segir stöðuna á bílaflota slökkviliðsins engan veginn vera góða, en búið sé að fá heimild til að kaupa fjóra nýja bíla. „Það koma tveir bílar saman fyrst og svo koma hinir tveir hvor sitt árið,“ segir Jón Viðar og býst við að fyrstu bílarnir gætu komið eftir eitt og hálft ár. Jón Viðar segir að í efnahagshruninu hafi aðaláherslan verið lögð á að koma í veg fyrir að þurfa að fækka mönnum. Þá hafi verið ákveðið að byggja nýja slökkvistöð í Mosfellsbæ til að bæta viðbragðstímann. Nú sé komið að því að endurnýja tæki. Undanfarið hefur slökkviliðið auglýst eftir starfsmönnum í dagblöðunum. Jón segir það hafa gengið vel. „Við höfum verið heppin að það er alltaf stór hópur sem sækir um,“ segir Jón Viðar og bætir við að í þetta skipti hafi um hundrað manns sótt um en í kringum 20 verði ráðnir. Eftir það telji starfsliðið um 170-180 manns að meðtöldum sumarstarfsmönnum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira