Nýtt myndband átaksins #kvennastarf frumsýnt: „Það voru margir sem sögðu mér að konur ættu alls ekki að vera þarna“ nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 13. febrúar 2017 19:36 Myndir á vegum átaksins hafa þegar verið birtar á strætóskýlum borgarinnar. visir/kvennastarf „
Karlmenn brugðust mjög mismunandi við þegar ég byrjaði í þessu starfi. Það voru margir sem sögðu mér að konur ættu alls ekki að vera þarna. En það var sem betur fer fleiri karlmenn sem tóku mér vel.“ Þetta segir Soffía Anna Sveinsdóttir pípulagningameistari í nýútkomnu myndbandi á vegum átaksins #kvennastarf. Myndbandið er frumsýnt hér á Vísi og má horfa á það hér að neðan.Fjallað var um herferðina í fréttatíma Stöðvar tvö síðastliðið föstudagskvöld. Í myndbandinu er rætt við kvenkyns pípulagningamenn en á meðal viðmælenda er Oddný María Gunnarsdóttir, fyrsti kvenpípulagningamaðurinn. Hún lauk sveinsprófi í pípulögnum árið 1990.Mynd úr herferðinni.vísir/kvennastarfÁtakið #kvennastarf er samstarfsverkefni Tækniskólans, samtaka iðnaðarins og iðn- og verkmenntaskóla á landinu. Í fréttatilkynningu segir að markmiðið með átakinu sé að „brjóta niður úreltar hugmyndir og benda ungu kynslóðinni á að allar leiðir séu færar í dag í námi og starfi fyrir bæði kynin.“ Nú þegar hafa ljósmyndir á vegum átaksins verið birtar á strætisvagnaskýlum á höfuðborgarsvæðinu en myndirnar sýna kvenkyns nemendur í iðngreinum undir myllumerkinu #kvennastarf. Að auki verða gefin út nokkur myndbönd um nám og störf kvenna í nokkrum fögum, líkt og myndbandið hér að ofan. Á vefnum kvennastarf.is má finna nánari upplýsingar um átakið.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Sjá meira