Íslendingar Evrópumeistarar í netkotru Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 15. janúar 2017 23:52 Sigurlið Íslands. Kotrusamband Íslands
Íslenska landliðið í kotru varð í kvöld Evrópumeistarar í netkotru. Kotra er íslenska heitið á backgammon og verður Evrópukeppnin í kotru haldin á Íslandi í október á þessu ári. Fjalarr Páll Mánason, stjórnarmeðlimur Kotrusambands Íslands, segir að hver sem er geti lært kotru. „Það er keppt í gegnum netþjón. Allt er svosem orðið í gegnum netið núna, skák og hvaðeina. Þarna komu saman 24 lið sem hófu keppni um mitt síðasta ár. Það eru fimm spilarar í hverju landsliði og svo er spilað þannig að þegar lið hefur tapað þrisvar sinnum þá er það dottið úr leik. Það er nokkuð handahófskennt fyrst hverjir spila gegn hvor öðrum. Svo er það þannig að þegar lið hefur tapað þrisvar þá er það dottið úr keppni,“ segir Fjalarr Páll í samtali við Vísi. „Þetta æxlaðist þannig að núna í lok desember kom það í ljós að við vorum þrjú lið þarna efst sem höfðum öll tapað tvisvar. Það vorum við, Pólland og Austurríki. Þannig að við spiluðum innbyrðis, gerðum það reyndar tvisvar því það endaði þannig í fyrstu umferð að við unnum öll sitt á hvað. En svo spiluðum við aðra umferð á því núna í byrjun árs. Þetta kláraðist í kvöld með hreinum úrslitaleik milli Stefáns Freys Guðmundssonar frá íslandi og Andreas Fisher frá Austurríki.“Besta spiliðFjalarr segir mikið á döfinni hjá Kotrusambandi Íslands. „Evrópukeppnin í Backgammon verður haldin á Íslandi í október á þessu ári. Það er mjög stórt mál. Það er það sem helst er að frétta. Það er frábært að hafa náð að vinna þetta núna og vonandi að þetta nái einhvern veginn að vekja einhvern áhuga á þessu spili sem er ekki nærri nógu vinsælt hérna á þessu landi. Allir sem spila þetta eru sammála um að þetta sé eiginlega besta spilið.“En hvað þarf til vilji maður verða Evrópumeistari í kotru? Hvaða hæfileika þarf að hafa?„Það þarf náttúrulega í fyrsta lagi að kunna kotru. Svo þarf að æfa sig og þetta er svona einstaklega skemmtileg blanda af heppni og hæfileikum, eiginlega meira en nokkuð annað spil sem ég þekki. Skák er frábært spil en það vita allir sem tefla að þeir eiga ekki séns í að vinna einhvern sem er betri en þeir í skák. Þannig að það verður jafnvel svona elítista sport að því leytinu að maður á bara ekki séns. Í þúsund skipti myndi ég aldrei vinna Magnus Carlsson í skák,“ segir Fjalarr Páll. „En útaf þessum heppnis þætti í kotru þá geta ólíklegustu spilarar unnið. En auðvitað eftir því sem leikirnir eru lengri og til langs tíma þá munu þeir bestu vinna oftar og verða farsælli, því þeir leika alltaf réttu leikina. En það er samt alltaf þessi heppnis þáttur. Þú þarft alltaf að hafa heppnina með þér til að vinna mót.“ Fjalarr segir að enga stund taki að læra spilið. „Það tekur tíu mínútur fyrir hvern sem er að læra þetta. Svo gæti það tekið kannski alla ævina að reyna að mastera þetta.“ Upplýsingar um starfsemi Kotrusambandsins og viðburði á næstunni fást á kotra.is eða Facebook síðu Kotrusambands Íslands.
Tengdar fréttir Má ekki kalla sig Íslandsmeistara "Það er allt í lagi þótt ég fái ekki bikarinn. Það er bara gaman að spila með,“ segir Spánverjinn Jorge Fonseca. Hann bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu í kotru í Þjóðmenningarhúsinu á sunnudaginn. Þrátt fyrir það getur hann ekki titlað sig sem Íslandsmeistara vegna þess að hann er spænskur ríkisborgari. Í staðinn er Fjalarr Páll Mánason Íslandsmeistari þrátt fyrir að hafa beðið 28. maí 2013 07:00 Frábær árangur á Evrópumóti í kotru Íslenska landsliðið í kotru braut blað í íslenskri kotrusögu þegar liðið lenti í fimmta sæti á Evrópumótinu í Króatíu um helgina. 30. september 2014 09:00 Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira
Má ekki kalla sig Íslandsmeistara "Það er allt í lagi þótt ég fái ekki bikarinn. Það er bara gaman að spila með,“ segir Spánverjinn Jorge Fonseca. Hann bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu í kotru í Þjóðmenningarhúsinu á sunnudaginn. Þrátt fyrir það getur hann ekki titlað sig sem Íslandsmeistara vegna þess að hann er spænskur ríkisborgari. Í staðinn er Fjalarr Páll Mánason Íslandsmeistari þrátt fyrir að hafa beðið 28. maí 2013 07:00
Frábær árangur á Evrópumóti í kotru Íslenska landsliðið í kotru braut blað í íslenskri kotrusögu þegar liðið lenti í fimmta sæti á Evrópumótinu í Króatíu um helgina. 30. september 2014 09:00