Þorgerður útilokar ekki að leggja fram mjólkurfrumvarpið í vor Heimir Már Pétursson skrifar 8. mars 2017 13:44
Landbúnaðarráðherra útilokar ekki að frumvarp sem ætlað er að auka samkeppni í mjólkuriðnaði verði lagt fram á yfirstandandi þingi. Verði frumvarpið að lögum muni það opna á nýliðun og nýsköpun styrkja mjög sterkan mjólkuriðnað í landinu enn frekar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur birt drög að frumvarpi á vef ráðuneytisins sem felur í sér miklar breytingar á starfsemi afurðarstöðva með mjólkurvörur. Frumvarpið hefur þegar kallað fram sterk viðbrögð. Haft er eftir bændum í Morgunblaðinu í dag að verði frumvarpið að lögum muni það bæði leiða til hækkunar á verði mjólkurvara og minni framleiðslu innanlands. Verið sé að koma í bakið á bændum miðað við nýlega afgreiðslu búvörulaga á Alþingi. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að menn andi rólega og fari vel yfir frumvarpið. Ég set þetta af ásettu ráði til kynningar. Nú er tími og tækifæri til að koma með athugasemdir, ábendingar, málefnalega gagnrýni. Ég tel einfaldlega að þetta muni til lengri tíma litið styrkja okkar sterka mjólkuriðnað,“ segir Þorgerður Katrín. Markmiðið sé að ná fram aukinni samkeppni í framleiðslu mjólkurafurða og opna fyrir frekari nýliðun og nýsköpun í landbúnaði og framleiðslu. „Mjólkursamsalan er að standa sig að mínu mati á umliðnum árum mjög vel. Við erum að sjá mjög öfluga framleiðslu víða. Hjá KS og líka hjá minni fyrirtækjunum, Örnu í Bolungarvík og öðrum. Ég held að við eigum einfaldlega eftir að sjá sterkari markað fyrir neytendur og meiri fjölbreytni,“ segir landbúnaðarráðherra. Samkvæmd frumvarpsdrögunum yrði afurðastöðvum óheimilt að gera samninga sín á milli um verðtilfærslu milli tiltekinna afurða, sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli mjólkursamlaga að því er varðar framleiðslu einstakra mjólkurvara og hafa með sér annars konar samstarf við framleiðslu, geymslu og dreifingu mjólkurafurða. Nú stendur yfir endurskoðun á búvörulögum sem á að verða lokið árið 2019. Ráðherra segir mikilvægt að nú gefist tími til að fara yfir ábendingar og umsagnir um frumvarpið en opið er fyrir umsagnir til 17. mars næst komandi. Hún útilokar ekki að frumvarpið verði lagt fram áður en endurskoðunarnefnd búvörulaga lýkur störfum. „Nei, ég útiloka ekkert. Ég vil einfaldlega að þetta verði unnið vel. Þess vegna Þess vegna tók ég þetta skref að setja þetta út til umsagnar. Þannig að öllum gæfist færi á að skoða málið vel, koma með sýna umsögn og vinna málið betur. Þess vegna er málið sett í opið gegnsætt ferli,“ Þannig að þú ert að kalla eftir viðbrögðum en ekki að fara að leggja þetta mál fram í vor? „Ég ætla ekki að útiloka neitt í þá veru. Það getur vel verið að það verði lagt fram til afgreiðslu og meðferðar í þinginu. Ég ætla ekki að útiloka neitt í því. Við viljum bara vinna þetta vel. Það er það sem skiptir mestu máli,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Sjá meira