Fordæma rasisma í undirbúningsskóla flughersins Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2017 16:41 Skólinn sem um ræðir er fyrir unga og efnilega flugmenn sem þurfa að bæta námsárangur sinn. Vísir/AFP
Fimm svartir nemendur undirbúningsskóla flughers Bandaríkjanna fundu rasísk skilaboð á hurðum sínum í vikunni. Málið hefur vakið mikla athygli og er til rannsóknar. „Farðu heim til þín negri“ hafði verið skrifað á hurðir nemendanna fimm. Skólinn er ætlaður ungu fólki sem þykir sína leiðtogahæfileika en þarf að standa sig betur í námi. Foreldrar nemendanna sem um ræðir vöktu athygli á málinu. „Þetta unga fólk á að vera þarna til þess að tengjast og vernda hvort annað og landið okkar. Á hverjum þarf sonur minn að vara sig? Óvininum eða óvininum?“ hafði Air Force Times eftir föður eins nemandans.Hershöfðinginn Jay Silveria, yfirmaður skólans, ræddi við nemendur, kennara og aðra í gær. Hægt er að taka saman ræðu hans í orðunum: „Ef þú getur ekki komið fram við aðra með reisn og virðingu, hunskastu!“Faðirinn sem ræddi við AFT sagði einnig að hann hefði ráðlagt syni sínum taka þetta ekki nærri sér og bregðast rétt við. Hann sagði son sinn ekki vera fórnarlamb í þessu máli en þess í stað væri fórnarlambið sá sem hefði skrifað skilaboðin. Sá einstaklingur væri líklega á leiðinni heim í smán og myndi missa af ferli í flughernum „bara vegna þess að hann var alinn upp með slíkum biturleika og hatri“.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Sjá meira