Macron ítrekar ábyrgð Frakka á örlögum 13 þúsund Gyðinga í París Heimir Már Pétursson skrifar 16. júlí 2017 18:40 Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels var viðstaddur minningarathöfnina í dag og sagði að fyrir 75 árum hafi mikill skuggi lagst yfir París, borg ljósanna. Vísir/AFP
Emanuel Macron forseti Frakklands segir Frakka ekki geta vikist undan ábyrgð sinni á því þegar um þrettán þúsund gyðingum var safnað saman fyrir 75 árum og sendir áfram í útrýmingarbúðir nasista. Forsætisráðherra Ísraels var gestur á minningarathöfn um voðaverkin í París í dag. Dagana 16. og 17. júlí árið 1942 voru rúmlega þrettán þúsund gyðingar, konur, börn og karlmenn handtekin og komið fyrir á hjólreiðaleikvangi skammt frá Effelturninum í París að skipan nasista sem þá höfðu hertekið landið. Franska hernámsstjórnin sem kölluð var Vichy stjórnin vann með hernámsliði Þjóðverja og sá lögregla á hennar vegum um handtökurnar. Fólkið var síðan allt sent í hinar hryllilegu útrýmingarbúðir í Auschwitz og lifðu aðeins tæplega hundrað manns þá þolraun af. Um fjögur þúsund börn voru meðal þeirra sem sendir voru í búðirnar. Emmanuel Macron forseti Frakklands fylgdi fordæmi Jacques Chirac sem fyrstur Frakklandsforseta viðurkenndi þátt Frakka í voðaverkunum árið 1995 og gekkst við þætti Frakka eins og Nicolas Sarkozy og Francois Hollande fyrrverandi forsetar höfðu einnig gert. En það var ekki fyrr en árið 2009 sem Hæstiréttur Frakklands úrskurðaði að Frakkar bæru einnig ábyrgð á örlögum fólksins. „Frakkland viðurkenndi mistök sín og leitaðist þar með við að bæta fyrir þau. Það ber vott um mikilleika þjóðarinnar, það ber vott um að þjóðin er lifandi og kann að horfast í augu við fortíð sína, það sýnir hugrekki þjóðarinnar sem þorir að skoða samvisku sína og bjóða fórnarlömbum og afkomendum þeirra útrétta sáttarhönd,“ sagði Macron meðal annars við minningarathöfnina í dag. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels var viðstaddur minningarathöfnina í dag og sagði að fyrir 75 árum hafi mikill skuggi lagst yfir París, borg ljósanna. „Ég er kominn hingað til að syrgja með ykkur og minnast fórnarlambanna. Eiginkona mín, Sara, missti alla fjölskyldu sína í helförinni. Við komum öll saman og syrgjum fórnarlömbin en á sama tíma segjum við stolt: "Am Israel Rai", Ísraelska þjóðin lifir,“ sagði Benjamin Netanyahu.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Sjá meira