Piñera tekur aftur við af Bachelet Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2017 08:36 Sebastián Piñera var forseti Chile á árunum 2010 til 2014. Vísir/AFP
Sebastián Piñera mun aftur setjast í stól forseta Chile í mars á næsta ári. Síðari umferð forsetakosninganna fóru fram í Suður-Ameríkuríkinu um helgina þar sem hægrimaðurinn og auðjöfurinn Piñera vann öruggan sigur. Andstæðingur Piñera, Alejandro Guillier, hefur þegar viðurkennt ósigur sinn og óskað Piñera til hamingju með sigurinn. Þegar búið var að telja nær öll atkvæðin var Piñera með 55 prósent en Guillier 45 prósent. „Þrátt fyrir að mikill munur sé á okkur þá er margt sem sameinar okkur,“ sagði Piñera við stuðningsmenn sína í höfuðborginni Santiago í gærkvöldi.Tekur aftur við af Bachelet Hinn 68 ára Piñera, sem stýrði landinu á árunum 2010 til 2014, tekur við af hinni vinstrisinnuðu Michlle Bachelet sem hefur gegnt forsetaembættinu síðustu fjögur árin. Þetta verður í annað sinn sem Piñera tekur við embættinu af Bachelet sem var einnig forseti á áruinum 2006 til 2010. Kosningaþátttaka var ekki mikil en einungis um sjö milljónir af sautján milljónum íbúa Santiago mættu á kjörstað.Greiðslukortamógúll Piñera hlaut mun fleiri atkvæði en Guillier í fyrri umferð kosninganna. Munurinn var minni í síðari umferðinni, fyrst og fremst þar sem vinstrimaðurinn Beatriz Sánchez lýsti þá yfir stuðningi við Guillier. Íhaldsmaðurinn Piñera auðgaðist mikið á níunda áratugnum þegar hann kynnti greiðslukort til leiks í Chile og er hann einn af auðugustu mönnum landsins. Á síðasta ári skipaði hann 745. sætið á lista Forbes yfir ríkustu menn heims.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira