Hugnast ekki aðkoma einkaaðila að flugvellinum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 11. ágúst 2016 14:30
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til í nefndaráliti sínu við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að einkaaðilar komi í auknum mæli að uppbyggingu og rekstri Keflavíkurflugvallar. Í Viðskiptahluta Morgunblaðsins, ViðskiptaMogganum, í morgun greinir Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, frá nefndaráliti meirihlutans.Á næstu árum er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Keflavíkurflugvöll muni kosta á bilinu 70 til 90 milljarða króna og að flugvöllurinn eigi að geta tekið á móti allt að 14 milljónum farþega. Meirihlutinn telur það umhugsunarvert að á síðustu sex árum hefur þeim flugvöllum í Evrópu sem eru í blandaðri eigu ríkis og einkaaðila eða alfarið í eigu einkaðila fjölgað hlutfallslega úr 23% í 55%. Nú fara 80% flugfarþega til og frá Evrópu og innan Evrópu um slíka flugvelli. Guðlaugur segir í samtali við ViðskiptaMoggann að uppbygging á flugvellinum sé nauðsynleg en þar sem hann er rekinn af hinu opinbera þá fylgi slík uppbygging mikil áhætta. Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, gefur lítið fyrir hugmyndir um aðkomu einkaaðila að flugvellinum. „Mér lýst nú ekkert vel á þær vangaveltur,“ segir hún. „Í fyrsta lagi vegna þess að innviðauppbygging Keflavíkurflugvallar er fjármögnuð með rekstri flugstöðvarinnar. Það eru engir peningar teknir úr öðrum verkefnum og færðir til flugvallarins. Þegar að uppbyggingunni er svo lokið fer reksturinn að skila arði í ríkissjóð. Það má ekki skilja það svo að það sé verið að taka peninga úr ríkissjóð til að byggja upp á Keflavíkurflugvelli,“ segir hún. „Síðan er Keflavíkurflugvöllur okkur mjög mikilvægur, ekki bara af því að við erum eyja, heldur líka af öryggisástæðum og sem gátt á milli landa og tenging á milli þeirra. Ég vill ekki setja þennan mikilvæga part af samgöngukerfi okkar í hendurnar á einkaaðilum. Opinberir aðilar eiga að reka flugvöllinn sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir okkur sem samfélag,“ segir Oddný.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira