Enski boltinn

Stórsókn Chelsea í seinni hálfleik skilaði engu marki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Costa og félagar náðu ekki að skora hjá Heurelho Gomes í kvöld.
Diego Costa og félagar náðu ekki að skora hjá Heurelho Gomes í kvöld. Vísir/Getty
Watford og Chelsea gerðu markalaust jafntefli á Vicarage Road í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikmenn Chelsea fengu fullt af færum til að tryggja sér sigurinn en Watford hélt út og er í níunda sæti deildarinnar.

Chelsea-menn hafa því enn ekki náð 30 stigum eftir 24 leiki en Englandsmeistararnir eru í 13. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og West Bromwich Albion.

Fyrri hálfleikurinn var jafn og ekki mikið um marktækifæri. Það breyttist í seinni hálfleikinn þegar pressa Chelsea-liðsins jókst með hverri mínútunni.

Chelsea skapaði sér fullt af góðum færum á síðasta hálftíma leiksins en leikmenn nýttu þau illa auk þess að Heurelho Gomes varði vel í markinu.

Chelsea hefur ekki tapað í sjö leikjum í öllum keppnum á þessu ári en liðið hefur aðeins unnið tvo deildarleiki síðan að Guus Hiddink tók við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×