Þingmaður Bjartrar framtíðar ánægður með nýjan formann Framsóknarflokksins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. október 2016 18:13 Sigurður Ingi Jóhannsson á leiðinni upp í pontu þegar búið var að tilkynna um sigur hans í formannskjörinu. vísir/anton brink
Róbert Marshall þingmaður Bjartrar framtíðar gerði formannskjör í Framsóknarflokknum að umtalsefni á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins. Sagði hann að tveir atburðir á síðustu mánuðum bentu til þess að hér á landi gætu hlutirnir verið að færast í betra horf. Nefndi hann annars vegar kjör Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta Íslands og hins vegar kjör Sigurðar Inga Jóhannssonar sem formanns Framsóknarflokksins. Sagði hann kjör Guðna gleðilegan áfanga í ljósi þeirra valkosta sem voru í stöðunni, annars vegar stjórnmálamaður mikilla átaka og hins vegar mannasættir á borð við Guðna Th. „Það sama blasir við í nýliðnu formannskjöri Framsóknarflokksins og ég vil nota þetta tækifæri hér og óska Framsóknarflokknum til hamingju með að hafa tekið að mínu mati gæfuspor um helgina vegna þess að valkostirnir þar voru af þessum tveimur skólum sem ég nefndi hér áðan, annars vegar maður sem hefur gert átök að meginstefi síns stjórnmálaferils og hins vegar hæstvirtur forsætisráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson sem hefur sýnt það á undanförnum mánuðum að hann er maður sátta, maður samtalsins sem hægt er að ræða við og komast að niðurstöðu og hún stendur,“ sagði Róbert. Hann hvatti síðan flokkana á þingi og aðra sem eru í framboði til þingkosninga að fara þá leið að vera á nótum samtalsins og vinna frekar í átt að sátt og sameiginlegri niðurstöðu. „Það er kominn tími til þess að kveðja tíma átakanna í pólitíkinni. að er út af því sem við lögðum af stað í þann leiðangur sem Björt framtíð stendur fyrir, að reyna að breyta stjórnmálunum í þá átt. Það er mjög ánægjulegt að sjá það gerast og við eigum að nýta tækifærið og halda áfram á þeirri braut.“
Tengdar fréttir Sigmundur Davíð: „Á flokksþinginu og í aðdraganda þess urðu atburðir sem ég hefði ekki trúað að gætu átt sér stað í Framsóknarflokknum“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins trúði því ekki að þeir atburðir sem áttu sér stað á flokksþingi Framsóknarmanna og aðdraganda þess gætu átt sér stað í flokknum. Þess vegna hefur hann ekki viljað ræða við fjölmiðla efitr þingið og segist enn ætla að bíða með það. 4. október 2016 17:46 Segja sannanir fyrir svindli í formannskjöri Framsóknar Formaður Framsóknarfélagsins í Reykjavík fullyrðir að átt hafi verið við kjörskrá á flokksþinginu um helgina. Borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina segir fjármagnseigendur hafa rænt völdum af grasrótinni. 4. október 2016 06:00 Jóhannes Þór: Úrslitin gríðarleg vonbrigði og aðdragandinn ömurlegur Aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson lætur af störfum eftir kosningar. 4. október 2016 14:07 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Sjá meira
Sigmundur Davíð: „Á flokksþinginu og í aðdraganda þess urðu atburðir sem ég hefði ekki trúað að gætu átt sér stað í Framsóknarflokknum“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins trúði því ekki að þeir atburðir sem áttu sér stað á flokksþingi Framsóknarmanna og aðdraganda þess gætu átt sér stað í flokknum. Þess vegna hefur hann ekki viljað ræða við fjölmiðla efitr þingið og segist enn ætla að bíða með það. 4. október 2016 17:46
Segja sannanir fyrir svindli í formannskjöri Framsóknar Formaður Framsóknarfélagsins í Reykjavík fullyrðir að átt hafi verið við kjörskrá á flokksþinginu um helgina. Borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina segir fjármagnseigendur hafa rænt völdum af grasrótinni. 4. október 2016 06:00
Jóhannes Þór: Úrslitin gríðarleg vonbrigði og aðdragandinn ömurlegur Aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson lætur af störfum eftir kosningar. 4. október 2016 14:07