Segir ákvörðun ráðherra koma á óvart Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 24. ágúst 2016 13:15
Rektor Háskóla Íslands undrast ákvörðun Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, um að flytja lögregluskólann norður á Akureyri þvert á niðurstöðu matsnefndar. Hann segir mikla vinnu hafa verið lagða í útboðið og að aðstaða á suðvesturhorni landsins sé þegar hentug fyrir lögreglunámið. Háskóli Íslands var talinn hæfastur til að taka að sér námið samkvæmt matsnefnd Ríkiskaupa sem annaðist ferlið. Ákveðið var að fela Ríkiskaupum að finna framkvæmdaaðila á háskólastigi sem gæti tekið við lögreglunáminu eftir að ákveðið var að færa það á háskólastig. Sett var á laggirnar matsnefnd og skiluðu þrír umsækjendur tilkynningu um þátttöku. Háskóli Íslands skoraði hæst hjá matsnefnd, Háskólinn á Akureyri kom annar og Háskólinn í Reykjavík var þriðji. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir ákvörun menntamálaráðherra hafa komið sér á óvart. „Já þetta kom á óvart. Við lögðum gríðarlega vinnu í þetta tilboð okkar í námið,“ segir Jón Atli. „Þetta var um sextíu síðna plagg og um fjörutíu manns komu að þessu á sumarleyfistíma. Við bjuggumst við því að niðurstaða nefndarinnar myndi vega þungt og HÍ skorar 9,5 af 10 mögulegum svo að þetta er glæsileg niðurstaða. Þannig að það eru vonbrigði að þetta skuli hafa farið svona en ég vil engu að síður nýta tækifærið og óska Háskólanum á Akureyri til hamingju með að fá námið,“ segir hann.Í ljósi þess að flestir lögreglumenn starfa á suðvesturhorni landsins og að greinin hefur gjarnan glímt við mönnunarvanda er það æskilegt að flytja starfsemi námsins norður á land? „Það er erfitt fyrir mig að tjá mig um það en ég get sagt að við lögðum þarna fram mjög góða áætlun og það er niðurstaða nefndarinnar. Það er þarna líka verkleg aðstaða sem við buðum upp á hjá Keili í Reykjanesbæ sem lögreglan er nú þegar að nota. Við lögðum allt í þetta og vorum tilbúin til að taka þetta að okkur.“ Hann segir að ef aðilar hefðu vitað það fyrr að byggðarsjónarmið hefðu slíkt vægi hefði ferlið vafalaust verið öðruvísi. „Það er mjög vandasamt að koma þessu námi af stað. Gera samning 1. september og fá inn nemendur og það verður erfitt fyrir hvern þann sem tekur þetta að sér. Ég hefði talið það eðlilegt að gera þetta miklu fyrr fyrst að byggðarsjónarmið ráða svona þungt við þessa ákvörðun. Þá hefði átt að tilkynna það fyrirfram og bjóða svo þeim sem eru annarsstaðar en hér að taka við náminu,“ segir Jón Atli.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira