Lúsin komin á stjá þrátt fyrir að börn séu vart mætt í skólann sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 24. ágúst 2016 13:20
Lúsin er komin á stjá í grunnskólum landsins og hafa foreldrar margir hverjir fengið tölvupóst þess efnis, þar sem þeir eru hvattir til að kemba börnunum. Grunnskólar voru settir á mánudag og hófst skólastarf í gær, og voru börnin því vart komin í skólann þegar fregnir tóku að berast af lús í hári nemenda.Samfélagið aldrei lúsalaust Heiðlóa Ásvaldsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur í Laugarnesskóla og Lækjarskóla, segir að lúsin sé á kreik allan ársins hring. Lúsapóstar hafi í hennar skólum verið sendir út áður en skólastarf hófst og að það hafi verið til að fyrirbyggja það að lúsin láti á sér kræla og að ítreka mikilvægi þess að foreldrar kembi börnum sínum með reglulegu millibili. „Lúsin er í rauninni allt árið hjá okkur. Fólk er farið að ferðast mikið erlendis þannig að við erum aldrei með lúsalaust samfélag orðið. Þannig að svo þegar krakkarnir fara í nánari snertingu þegar skólarnir byrja þá á hún auðveldara með að smitast á milli barna,“ segir Heiðlóa.Allir þurfi að leggjast á eitt Aðspurð segir hún lúsasmit hafa aukist töluvert á síðustu árum. „Undanfarin ár hefur verið toppur í lús í grunnskólum landsins og það er verið að senda pósta snemma og ég hef til dæmis síðustu tvö árin haft það þannig að senda póst áður en skólinn byrjar og bið fólk um að athuga hjá sínum börnum hvort þau eru með lús þannig að þau komi lúsalaus í upphafi skóla.“ Því þurfi allir að leggjast á eitt. „Þá er þetta miklu auðveldara ef allir taka þátt og gera þetta, þá á þetta ekki að vera stórt vandamál. Vissulega er þetta alltaf þannig að það eru einhverjir sem gera þetta ekki og aðrir sem eru ofursamviskusamir. En þetta er held ég hluti af því sem við þurfum að gera hjá börnunum okkar. Við þurfum að klippa neglurnar og greiða hárið, og við þurfum að athuga hvort það sé lús. Við þurfum bara að sætta okkur við þá staðreynd,“ segir Heiðlóa.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira