Fimm stjörnu frammistaða hjá Chelsea | Sjáðu öll mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 31. janúar 2016 17:45
Chelsea sýndi gamla og góða takta í öruggum 5-1 sigri á MK Dons í lokaleik dagsins í 32-liða úrslitum bikarsins en leikmenn Chelsea fengu fjöldan allra tækifæra til að bæta við mörkum. Spilamennska Chelsea hefur farið batnandi undanfarnar vikur og kom Oscar gestunum í Chelsea yfir á upphafsmínútum leiksins þegar hann renndi boltanum í netið af stuttu færi eftir góðan undirbúning Diego Costa. Heimamenn í MK Dons jöfnuðu metin fimm mínútum síðar þegar írski miðjumaðurinn Darren Potter skoraði með langskoti sem fór af Nemanja Matic, breytti algjörlega um stefnu og hafnaði í netinu. Óverjandi fyrir Thibaut Courtois í marki Chelsea. Oscar var ekki lengi að svara fyrir það og bætti við öðru marki fimm mínútum síðar eftir góðan undirbúning Ruben Loftus-Cheek. Aðeins tíu mínútum síðar var Oscar aftur á ferðinni, í þetta skiptið með langskoti og fullkomnaði hann þrennuna í fyrri hálfleik. Eden Hazard skoraði sjaldséð mark á upphafsmínútum seinni hálfleiks og gerði út um leikinn af vítapunktinum eftir að brotið hafði verið á honum innan vítateigsins. Var þetta fyrsta mark Hazard í tæplega níu mánuði eða frá sigurmarki hans gegn Crystal Palace 3. maí síðastliðinn. Bertrand Traore sem kom inn sem varamaður skoraði fimmta mark Chelsea og síðasta mark leiksins skömmu síðar eftir góðan undirbúning frá Hazard en þetta var fyrsta mark þessa tvítuga sóknarmanns fyrir Chelsea.Potter jafnar með skrautlegu marki sem fer af Matic: Oscar kemur Chelsea aftur yfir: Oscar fullkomnar þrennuna: Hazard skorar loksins mark eftir tæplega níu mánaða bið: Bertrand Traore kominn á blað hjá Chesea:
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Man. City verður meistari Sport Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira