Enski boltinn

Enginn fundur fór fram milli Manchester United og Guardiola

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola. Vísir/Getty
Forráðamenn Manchester United hafa neitað þeim sögusögnum að félagið hafi fundað með Pep Guardiola um möguleikann á því að hann taki við liðinu af Hollendingnum Louis van Gaal.

Hið virta fótboltablað France Football sló því upp að þessi fundur hjá Manchester United og Guardiola hafi farið fram í París í síðustu viku.

BBC er aftur á móti með frétt í morgun um að Manchester United þvertekur fyrir að þessi fundir hafi farið fram á franskri grundu eða einhverstaðar annarsstaðar.

Hinn 45 ára gamli Pep Guardiola er búinn að gefa það út að hann ætli að hætta með lið Bayern München í vor og hefur einnig viðurkennt það að hann hafi fengið nokkur tilboð frá enskum liðum en þangað vill hann fara næst.

Nágrannar Manchester United í Manchester City þóttu líklegastir til að tryggja sér starfskrafta Pep Guardiola en hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Manchester United.

Framtíð Louis van Gaal hefur verið í uppnámi vegna lélegs árangurs og hundleiðinlegrar spilamennsku en Hollendingurinn létti aðeins á pressunni með því að vinna erkifjendurna Liverpool um síðustu helgi.

Manchester United er þessa stundina í fimmta sæti deildarinnar, aðeins tveimur sætum á eftir Tottenham sem situr í síðasta Meistaradeildarsætinu.

Stuðningsmenn Manchester United fá eflaust  stjörnur í augun að sjá Pep Guardiola orðaðan við félagið en hann hefur unnið ófáa titlana með bæði Barcelona og Bayern München. Það lítur þó út fyrir að United ætli að halda tryggð við Louis van Gaal enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×