Innlent

Leituðu að manni í sjónum í Önundarfirði

Gissur sigurðsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á leið út á Vestfjarðamið, var beðin að fljúga yfir svæðið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á leið út á Vestfjarðamið, var beðin að fljúga yfir svæðið. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir á Vestfjörðum voru kallaðar út til leitar á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um mann í sjónum skammt undan Breiðdalsá í Önundarfirði og hófst leit í fjörum og á sjó.

Auk þess var þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á leið út á Vestfjarðamið, beðin að fljúga yfir svæðið á leið sinni að sækja veikan sjómann um borð í íslenskt fiskiskip.

Þyrlan flaug yfir svæðið bæði á útleið og bakaleið, en einskis varð vart og var sjómaðurinn fluttur á Landsspítalann.

Jafnframt kannaði lögreglan með öllum tiltækum ráðum hvort einhvers væri saknað, en þegar það og leitin, við bestu aðstæður, báru ekki árangur, var leitinni hætt laust fyrir klukkan þrjú í nótt.

Klukkan sex í morgun hafði lögreglan ekki frétt nánar um hvort einhvers væri saknað.

Strax og leit var lokið barst hjálparbeiðni frá erlendum ferðamönnum, sem sátu fastir í jeppa sínum á lokuðum vegslóða við Syðridalsvatn í grennd við Bolungarvík. Björgunarsveitarmenn fóru á vettvang og fluttu menn og bíl til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×