Telur áhættu Mosfellsbæjar vegna lóðar undir einkaspítala enga Ingvar Haraldsson skrifar 27. júlí 2016 06:00 Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, handsalar samkomulag við Henri Middeldorp, stjórnarformann MCPB.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir áhættu bæjarins vegna samnings um lóð undir einkarekinn spítala og hótel enga þótt bærinn hafi ekki nákvæmar upplýsingar um hvaða aðilar standi að fjárfestingunni eða með hvaða hætti verkefnið verði fjármagnað. Fjárfestarnir hafa frest til 1. desember 2017 til að sýna bæjaryfirvöldum raunhæfa viðskiptaáætlun og veita upplýsingar um fjármögnun verkefnisins. Gangi það ekki eftir er bænum heimilt að rifta samkomulaginu. „Ef þessar upplýsingar koma ekki eða eru ekki þóknanlegar þá getur Mosfellsbær gengið út úr verkefninu hvenær sem er,“ segir Haraldur. Félagið MCPB gerði leigusamning við bæinn um lóð til 99 ára, með kauprétt að landinu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Haraldur hefur sagt að um vika hafi liðið frá því fulltrúar MCPB hafi sett sig í samband við bæjarfélagið þar til skrifað var undir samkomulagið. Henri Middeldorp, stjórnarformaður MCPB, segir verkefnið verða fjármagnað með láni frá hollenska félaginu Burbanks Capital. Engir Íslendingar koma að fjármögnun. Haraldur segir MCPB þurfa að afla byggingarleyfis innan tveggja ára, annars sé bænum heimilt að rifta samkomulaginu. „Við erum fyrst og fremst að úthluta lóð undir þetta verkefni ef af því verður. Þarna stendur lóð sem er skipulögð undir þessa starfsemi. Það hafa ekki verið neinir í biðröðum að óska eftir að fá að nota hana,“ segir Haraldur.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Sjá meira