Wenger óttaðist um titilvonir Arsenal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2016 13:45
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, leist ekkert á blikuna þegar Leicester komst yfir í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Sigur Leicester hefði þýtt að spútnikliðið hefði náð átta stiga forystu á Arsenal og verið í lykilstöðu í titilbaráttunni. En Arsenal náði að koma til baka og vinna dramatískan 2-1 sigur þökk sé sigurmarki varamannsins Danny Welbeck í uppbótartíma.Sjá einnig: Welbeck hetja Arsenal gegn Leicester í ótrúlegum leik Leicester er enn á toppnum en nú með tveggja stiga forystu á bæði Arsenal og Tottenham, sem vann 2-1 sigur á Manchester City í gær. „Tap hefði verið hræðilegt. Allt umtal hefði verið neikvætt og trúin hjá mönnum hefði minnkað. Það hefði verið mun erfiðara að berjast um titilinn,“ sagði Wenger. „Við hefðum ekki gefist upp en það þarf þrjá leiki til að vinna upp átta stiga mun. Þetta var strax mun skárra þegar við jöfnuðum leikinn og munurinn varð aftur fimm stig.“ Hann var vitanlega hæstánægður með sigurmark Welbeck og segir að hans menn hafi átt það skilið miðað við framlag þeirra í leiknum. „Við eigum möguleika og við skulum sjá til. Við höfum nú unnið tvo leiki í röð eftir fjóra leiki í röð án sigurs. Það er frábært að við eigum enn möguleika þrátt fyrir svo slæman kafla.“
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira