Íbúum fjölgar í Garðinum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 28. júlí 2016 07:00 Íbúar í Garðinum voru 1.480 í júlí samkvæmt bráðabirgðatölum. „
Við fögnum öllum nýjum íbúum og bjóðum alla velkomna,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, en íbúum í sveitarfélaginu hefur fjölgað um tæplega fjögur prósent á sjö mánuðum samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Þann 1. desember árið 2015 voru íbúar 1.425 en voru, samkvæmt bráðabirgðatölum 18. júlí síðastliðinn 1.480. „Ég held að ástæðan sé aukið framboð atvinnu á svæðinu og svo veit ég um nokkur dæmi þar sem fólk er að selja eignir sínar á höfuðborgarsvæðinu til þess að kaupa ódýrari eign hérna,“ segir Magnús og bætir við að einnig séu dæmi þess að barnafólk sæki í góða þjónustu í Garði. Íbúar í Garði voru, þegar mest var, 1.550 árið 2009 en þeim fór fækkandi árin á eftir og voru 1.409 árið 2014. Mikill viðsnúningur hefur orðið síðan. Ef fram heldur sem horfir gæti íbúafjöldi í sveitarfélaginu orðið nálægt 1.500 í lok árs 2016. Magnús segir mikla sölu hafa verið á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu síðustu mánuði. Íbúðalánasjóður hefur selt mikið af þeim eignum sem voru í eigu sjóðsins á svæðinu. Þá hafa verktakar og aðrir aðilar selt eignir sem áður stóðu auðar. „Það er enn til laust húsnæði til sölu.“Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Sjá meira