Innlent

Fór holu í höggi 87 ára gamall

Atli Ísleifsson skrifar
Ármann með á áttunda teignum.
Ármann með á áttunda teignum. Myndir/Svavar Berg Magnússon
Hinn 87 ára gamli Ármann Þórðarson, einn af stofnendum Golfklúbbs Ólafsfjarðar, fór holu í höggi á Ólafsfjarðargolfvelli fyrr í dag.

Að sögn dóttur Ármanns, Sigrúnar Evu, er þetta í fyrsta sinn sem Ármann fer holu í höggi en hann hefur lengi stundað íþróttina.

Ármann náði draumahögginu á áttundu holu vallarins.

Golfklúbbur Ólafsfjarðar var stofnaður 1968.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×