Að reka Van Gaal og verða af Meistaradeildarsæti mun kosta United milljarða Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. janúar 2016 13:00 Rendurnar þrjá borga vel. vísir/getty
Óvíst er hvort Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, lifi af í starfi á Old Trafford þessa vikuna eftir enn ein slæmu úrslitin um síðustu helgi. Manchester United tapaði, 1-0, fyrir Southampton á heimavelli á laugardaginn þar sem í tíunda sinn í ellefu heimaleikjum var markalaust í hálfleik. „Ég skil fólkið vel að baula á okkur. Það var rétt hjá þeim. Við eigum að skemmta fólkinu og það erum við ekki að gera,“ sagði Van Gaal svekktur í viðtali eftir leikinn. Margir stuðningsmenn United og breskir fótboltapennar kalla eftir því að Hollendingurinn verði rekinn, en það mun kosta sitt. Rétt eins og það mun kosta Manchester United fúlgur fjár að komast ekki í Meistaradeildina. Samkvæmt frétt á fótboltavefnum Goal.com á Van Gaal tíu milljónir punda eða tvæpa tvo milljarða inni hjá United sem hann á að fá borgað á næstu 17 mánuðum í starfi. Hann er með sjö milljónir punda í laun á ári. Verði hann rekinn þarf Manchester United væntanlega að borga upp allan samninginn auk starfslokasamnings og þá þarf að gera upp við fimm manna starfslið hans sem Van Gaal tók með sér frá Hollandi. Stjórn Manchester United þarf að ákveða hvort það sé kostnaðurinn sem félagið vill taka á sig eða eiga í hættu á að komast ekki í Meistaradeildina. United er fimm stigum á eftir Tottenham sem er í fjórða sætinu þegar 15 umferðir eru eftir. Manchester United gerði risastóran treyjusamning við Adidas sem tók gildi fyrir tímabilið. Adias þarf samkvæmt honum að borga United 75 milljónir punda á ári, en komist liðið ekki í Meistaradeildina dragast 23 milljónir punda eða um fjórir milljarðar íslenskra króna frá upphæðinni. Komist United ekki í Meistaradeildina verður það einnig af tekjum frá UEFA og sjónvarpstekjum, en bara fyrir að komast í Meistaradeildina ætti United von á 30 milljónum punda frá UEFA.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira