Stúdentar skora á þingmenn að afgreiða LÍN-frumvarpið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. september 2016 18:53 Skora á þingmenn að afgreiða LÍN-frumvarpið. vísir/ernir
Formenn Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ), Félags Stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA), Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) og Nemendasambands Tækniskólans (NST) hafa skorað á þingmenn að klára frumvarp um námslán og námsstyrki, svokallað LÍN-frumvarp á yfirstandandi þingi. „Stúdentar munu ekki una því að bíða til næsta kjörtímabils eftir endurbótum á námsaðstoðarkerfinu. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að þetta frumvarp er risastórt skref í átt að því námsaðstoðarkerfi sem við viljum sjá á Íslandi í framtíðinni, en það hefur í för með sér þau atriði sem stúdentar hafa lengi barist fyrir, til að mynda fyrirframgreiðslur, beina námsstyrki og 100% framfærslu,“ segir í yfirlýsingu frá félögunum fjórum. Frumvarpið hefur verið afar umdeilt bæði hjá hagsmunaaðilum sem og á stjórnmálasviðinu en undanfarið hefur það verið í vinnslu hjá Allsherjar- og menntamálanefnd þar sem það hefur tekið töluverðum breytingum. Hefur stjórnarandstaðan gefið það út að hún muni standa í vegi fyrir því að frumvarpið verði samþykkt. Skora félögin á stjórnarandstöðuna að hætta við þessi áform sín. „Að þessu sögðu skorum við á stjórnarandstöðuna að leggja kosningaslaginn til hliðar og hlusta á stúdenta, sem eru langþreyttir á því að vera notaðir í pólitískum leikjum á milli stjórnmálaflokka. Við krefjumst þess að málið fari á dagskrá og verði tekið fyrir í 2. umræðu sem allra fyrst,“ segir í yfirlýsingunni. Þá vilja félögin að lögð verði fram og samþykkt þingsályktunartillaga um að haldið verði áfram að vinna að málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna á næsta kjörtímabili og að stúdentar verði hafðir með í ráðum.Áskorun SHÍ, FSHA, SFHR og NST í heild sinni„Formenn Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ), Félags Stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA), Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) og Nemendasambands Tækniskólans (NST) skora hér með, fyrir hönd félaganna, á þingmenn stjórnarflokkanna jafnt sem stjórnarandstöðunnar að klára frumvarp um námslán og námsstyrki á þessu þingi.Stúdentar munu ekki una því að bíða til næsta kjörtímabils eftir endurbótum á námsaðstoðarkerfinu. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að þetta frumvarp er risastórt skref í átt að því námsaðstoðarkerfi sem við viljum sjá á Íslandi í framtíðinni, en það hefur í för með sér þau atriði sem stúdentar hafa lengi barist fyrir, til að mynda fyrirframgreiðslur, beina námsstyrki og 100% framfærslu.Við erum sammála um að þær breytingar sem allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að gerðar verði á frumvarpinu eru jákvæðar og að frumvarpið sé í heild sinni gífurleg kjarabót fyrir stúdenta.Að þessu sögðu skorum við á stjórnarandstöðuna að leggja kosningaslaginn til hliðar og hlusta á stúdenta, sem eru langþreyttir á því að vera notaðir í pólitískum leikjum á milli stjórnmálaflokka. Við krefjumst þess að málið fari á dagskrá og verði tekið fyrir í 2. umræðu sem allra fyrst.Jafnframt krefjumst við þess að lögð verði fram og samþykkt þingsályktunartillaga um að haldið verði áfram að vinna að málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna á næsta kjörtímabili og að stúdentar verði hafðir með í ráðum.Fyrir hönd félaganna,Davíð Snær Jónsson, formaður NSTHelga Margrét Mason Jóhannesdóttir, formaður FSHAKristófer Már Maronsson, formaður SHÍRebekka Rún Jóhannesdóttir, formaður SFHR“
Tengdar fréttir Skulda LÍN mest en hafa ekki borgað krónu til baka á 9 árum Þeir tuttugu sem skulda LÍN mest skulda samtals 690 milljónir. LÍN býst við því að fá 92 milljónir til baka frá hópnum en restin verður í raun afskrifuð. Flestir í hónum luku námi fyrir meira en tíu árum og þar af tveir á síðustu 22. ágúst 2016 06:00 Vinna gæti farið til spillis verði LÍN-frumvarpið ekki samþykkt fyrir þinglok Stúdentar þurfa ekki að reiða sig á yfirdrátt eða önnur lán til þess að framfleyta sér í gegnum skólaárið 27. september 2016 18:45 Mikil skekkja í framfærslu námsmanna Lán til íslenskra námsmanna í tuttugu fjölmennustu löndum meðal umsækjenda LÍN voru að meðaltali um tuttugu prósent umfram framfærsluþörf við gerð úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2014 til 2015. 8. ágúst 2016 07:00 Mest lesið Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Sjá meira
Skulda LÍN mest en hafa ekki borgað krónu til baka á 9 árum Þeir tuttugu sem skulda LÍN mest skulda samtals 690 milljónir. LÍN býst við því að fá 92 milljónir til baka frá hópnum en restin verður í raun afskrifuð. Flestir í hónum luku námi fyrir meira en tíu árum og þar af tveir á síðustu 22. ágúst 2016 06:00
Vinna gæti farið til spillis verði LÍN-frumvarpið ekki samþykkt fyrir þinglok Stúdentar þurfa ekki að reiða sig á yfirdrátt eða önnur lán til þess að framfleyta sér í gegnum skólaárið 27. september 2016 18:45
Mikil skekkja í framfærslu námsmanna Lán til íslenskra námsmanna í tuttugu fjölmennustu löndum meðal umsækjenda LÍN voru að meðaltali um tuttugu prósent umfram framfærsluþörf við gerð úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2014 til 2015. 8. ágúst 2016 07:00