Innbrot í Fossvogi: Fengu sér Hnetutopp og fluttu svo fimm gítara í hjólbörum um hverfið Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2016 10:41 Ólafur Elíasson segir að Fender Custom Shop gítarinn hafi verið notaður í fjölmörgum unglingaverkefnum á hans vegum.
Óprúttnir aðilar brutust inn á heimili Ólafs Elíassonar tónlistarkennara í Fossvogshverfi í Reykjavík í gær. Fimm gítörum af dýrari gerðinni var stolið, fartölvum, hljómborði dóttur hans og ýmsu fleiru. Ólafur segir að svo virðist sem að innbrotsþjófurinn eða þjófarnir hafi spennt upp bakdyrahurð á heimili fjölskyldunnar milli klukkan 12 og 14 í gær. „Þeir tóku þarna fimm gítara sem mér er mjög annt um. Svo tóku þeir tvær fartölvur, míkrófón, hljómborð dóttur minnar sem hún var lengi að safna sér fyrir og ýmislegt fleira.“ Hann segir lögreglumenn hafa komið á vettvang og tekið skýrslu vegna málsins og vonast til að mögulegt verði að hafa uppi á þýfinu, sérstaklega þar sem einn gítaranna sé auðþekkjanlegur og mjög sérstök útgáfa af Fender. „Lögregla sagði þó að þýfi sem þetta fari oft upp í einhvern gám og hverfi út landi. Ég vil þó trúa því að þetta finnist.“Hjólbörurnar fundust í matjurtargörðum skammt fráÓlafur segir að þegar fjölskyldan hafi farið að skoða aðstæður úti í garði sínum hafi komið í ljós að hjólbörurnar voru á bak og burt. „Þær fundust svo í matjurtagörðum um hundrað metrum frá húsinu,“ segir Ólafur sem býr í Grundarlandi.Ólafyr býr í Grundarlandi en hjólbörurnar fundust í matjurtagörðum Reykjavíkurborgar skammt frá.Mynd/Loftmyndir„Þeir hafa þá ferjað hljóðfærin og tölvurnar í hjólbörunum, komið þessu eitthvað áleiðis frá húsinu og á brott. Það bara hlýtur einhver að hafa séð þessa menn vera að ferja þýfið þessa leið.“Fengu sér ísÓlafur segir að þegar dóttir hans hafi komið heim um miðjan dag í gær og séð að brotist hafi verið inn, þá hafi frystirinn einnig staðið opinn. „Þeir hafa fengið sér toppís. Ég mundi að það var einn Hnetutoppur eftir í frystinum og við sáum leifarnar af bréfunum úti í garði.“ Hann segist hafa safnað gítörunum sem stolið var á síðustu árum. „Ég er með mikið unglingastarf og hef haft gaman af því að láta krakkana nota hljóðfærin mín sem eru af hæsta gæðaflokki. Þetta eru Fender og Gibson gítarar í dýrari kantinum, hljóðfæri sem hafa fylgt starfi mínu lengi og ég sé mjög mikið á eftir. Mest sé ég eftir Fender Custom Shop gítar sem hefur verið notaður í mikið af unglingaverkefnum,“ segir Ólafur.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Fleiri fréttir Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum Sjá meira