Finnst laun þingmanna og ráðherra alltof lág Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. ágúst 2016 14:04
Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins og Brynhildur Pétursdóttir þingmaður Bjartrar framtíðar voru gestir Heimis Karlssonar á Sprengisandi í morgun. Ræddu þau meðal annars ýmsar hliðar þingmennskunnar og þingstarfanna, þar á meðal álag og laun þingmanna, en Karl sækist eftir 1. sæti á lista framsóknarmanna í Reykjavík en Brynhildur ætlar að hætta á þingi eftir kosningarnar í haust. „Mér finnst þetta vera töluverð mikil vinna og af því að ég sit í fjárlaganefnd þá er alveg brjáluð vinna þar fram að jólum. En það sem bjargar þessu er að fríin eru góð og mér finnst að maður eigi ekkert að tala þau niður því þá getur maður verið heima hjá sér og svolítið ráðið því sem maður er að gera,“ sagði Brynhildur. Brynhildur kveðst ekki vera að hætta út af vinnuálagi á þingi; hún sakni þess einfaldlega að vera heima hjá sér á Akureyri. „En ef það er einhver svona eftirsjá eða ef ég gæti breytt einhverju þá hefði ég þurft að gefa kjördæminu mínu meiri tíma. Mér finnst ég ekki hafa getað sinnt því eins og ég hefði viljað því mér finnst ég hafa verið bundin í Reykjavík bara yfir öðrum þingstörfum.“„Starf sem þú ert aldrei alveg laus við“ Karl sagði mikilvægt að muna að skyldur þingmanna takmarkist ekki aðeins við þinghúsið. „Við fáum boð á viðburði og það er ætlast til að við mætum víða. Það er ætlast til að við mætum í fjölmiðla til að sinna þeim hluta og það sem er mikilvægt að hafa í huga varðandi þingstarfið er að þetta er starf sem þú ert aldrei alveg laus við því það er verið að ónáða þig á öllum tímum sólarhrings.“ Brynhildur sagði að henni fyndist hún ekki verða fyrir miklu áreiti utan vinnutíma. „Það áreiti innan gæsalappa hefur mér alltaf fundist vera jákvætt. Það var að vísu um tíma einhver maður sem hringdi oft á furðulegum tímum í heimasímann, kannski í glasi, ég veit það ekki. Það var eina svona óþægilega áreitið sem ég hef fann,“ sagði Brynhildur og tók fram að hún vildi ekki nota orðið áreiti um þetta því henni hefði alltaf fundist mjög gaman í vinnunni. Karl sagðist heldur ekki hafa lent í neinu neikvæðu áreiti. Það væri sjálfsagt og gaman að spjalla við ókunnugt fólk á förnum vegi um pólitík og það væri einfaldlega hluti af starfinu.Ekki sáttur við að embættismenn séu með 50 prósent hærri laun en ráðherrar Þegar kom að umræðu um laun þingmanna sagði Karl: „Ég er þeirrar skoðunar að laun þingmanna eru of lág. Ég get tekið sem dæmi bara mín laun. Ég er á strípuðum launum sem þingmaður Reykjavíkur, ekki með neinar útgreiðslur, og ég fæ útborgað 500 þúsund og eitthvað á mánuði eftir skatt. Menn halda að við séum á miklum aukagreiðslum fyrir að mæta á nefndarfundi en við fáum ekkert borgað fyrir nefndarfundi.“ Aðspurður hver launin ættu að vera kvaðst Karl ekki vita það en nefndi þá að honum þætti laun ráðherra jafnframt of lág miðað við það mikla álag sem væri á þeim. „Ég er til dæmis ekkert sáttur við það að það séu einhverjir embættismenn í ríkisstofnunum með kannski 50 prósent hærri laun en ráðherrar,“ sagði Karl.Fólk í pólitík af hugsjón, ekki bara fyrir peninga Hann vildi ekki taka afstöðu til þess hvort það ætti að tvöfalda laun ráðherra og þingmanna. „Ég er bara að segja að þessi strúktúr á launum hjá ráðherrum versus það sem er hjá ríkisstofnunum að það sé eitthvað mjög óeðlilegt við það.“ Brynhildur sagðist ekki hafa verið ósátt við laun sín sem þingmaður en það helgaðist ef til vill af því að hún hefði aldrei haft neitt sérstaklega góð laun. Hún segir að það megi vel vera að með hærri launum fengist hæfara fólk inn á þing. „Þetta má alls ekki vera þannig að launin hreki fólk frá, við viljum fá hæft fólk en þú ert auðvitað líka að gera að einhverju leyti af hugsjón. Ég vil ekki bara fá eitthvað fólk sem sér fyrir sér eitthvað mjög vel launað starf.“
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Fleiri fréttir Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent