Áttföldun á útlánum lífeyrissjóðanna Ásgeir Erlendsson skrifar 6. ágúst 2016 19:30
Útlán Lífeyrrissjóða á húsnæðismarkaði hér á landi hafa áttfaldast á einu ári. Dósent í hagfræði segir þetta lýsa bættu ástandi á fasteignamarkaði og að þessi þróun sé til góða fyrir íslenska neytendur. Í október í fyrra tók Lífeyrissjóður Verzlunarmanna þá ákvörðun að hækka veðhlutfall íbúðalána í 75% og lækkaði vexti við sama tilefni á þann hátt að kjör sjóðsins voru nokkuð hagstæðari en viðskiptabankanna. Fleiri lífeyrissjóðir fylgdu í kjölfarið og síðan þá hafa útlánin aukist hratt.Flestir velja verðtryggð lán. Fyrstu sex mánuði ársins lánuðu lífeyrissjóðirnir 38,4 milljarða í húsnæðislán með útgáfu tæplega 2500 skuldabréfa. Tæplega 74% lánanna voru verðtryggð lán og rúmlega 26% óverðtryggð. Umsvif lífeyrissjóðanna á húsnæðislánamarkaði hefur því tæplega áttfaldast frá því í fyrra. Frá þessu var fyrst greint Kjarnanum. Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði segir jákvætt að lífeyrissjóðirnir hafi komið inn af auknum krafti á markaðinn í fyrra. „Lífeyrissjóðirnir hafa alltaf fjármagnað húsnæðislán á Íslandi. Spurning hvort þeir geri það beint eða óbeint. Eins og þeir gerðu áður kaupi útgáfur Íbúðalánasjóðs eða bankanna. Það má segja að það sé í rauninni bara jákvætt að þeir hafi komið sterkir inn á markaðinn og í rauninni einhverju leiti brugðist við vöntun á fjármagni sem þarna var til staðar.“ Hann segir ástæðu vinsælda lífeyrissjóðanna þegar kemur að húsnæðislánum skýrast af betri kjörum og aukinni uppsveiflu á fasteignamarkaði. „Þetta lýsir meira en nokkuð annað, bættu ástandi á fasteignamarkaði. Aukinni eftirspurn. Lífeyrissjóðarnir hafa í sjálfu sér alltaf lánað út til sinna sjóðsfélaga en spurning hversu mikil eftirspurn er eftir því.“Gætu minnkað umsvifin. Í ljósi aukinnar hlutdeildar á húsnæðislánamarkaðnum sé ekki ólíklegt að lífeyrissjóðirnir minnki umsvif sín í húsnæðislánum næstu mánuðum. „Það kæmi ekki á óvart ef þeir fara aðeins að hægja á sér í þessu.“
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira