Innlent

Verkstjóri matsals dró sér fé

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ákærð fyrir að hafa dregið sér samtals 841.572 krónur, afrakstur sölu matvöru í matsalnum.
Ákærð fyrir að hafa dregið sér samtals 841.572 krónur, afrakstur sölu matvöru í matsalnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrum verkstjóra í matsal Landspítalans í Fossvogi í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi.

Konan, sem var verkstjóri í matsölu Landspítalans í Fossvogi, sá um að fara með þá peninga sem inn komu vegna matsölunnar í þar til gerð peningaumslög og skila þeim í kassa til öryggisvarða. Var hún ákærð fyrir að hafa dregið sér samtals 841.572 krónur, afrakstur sölu matvöru í matsalnum.

Konan var dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 2 árum. Þarf hún að greiða Landspítalanum 841.557 krónur, með vöxtum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×