Rúmlega 600 nemendur brautskráðir frá HR Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. júní 2016 15:43 Frá útskrift Háskólans í Reykjavík í Hörpu í dag. mynd/hr
641 nemandi brautskráðist frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Alls voru 443 nemendur brautskráðir úr grunnnámi, 196 úr meistaranámi og tveir nemendur útskrifuðust með doktorsgráðu. Í tilkynningu kemur fram að flestir hafi lokið námi frá viðskiptadeild skólans eða alls 225 nemendur. Þar af voru 107 að ljúka meistargráðu og einn doktorsgráðu. Úr tækni- og verkfræðideild háskólans útskrifuðust 211 nemendur, þar af 54 með meistaragráðu. Þá útskrifaði lagadeild skólans 68 nemendur, þar af 33 með meistaragráðu. Tölvunarfræðideild útskrifaði 137 nemendur, þar af tvo með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu. Í ávarpi sínu fjallaði Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, meðal annars um mikilvægi þess að fjárveitingar til háskóla á Íslandi verði sambærilegar við það sem gerist í nágrannalöndunum: „Vegna mikilvægis háskólastarfs fyrir framtíð Íslands hefur vísinda- og tækniráð, undir formennsku forsætisráðherra, samþykkt að íslenskir háskólar skuli vera jafn vel fjármagnaðir og norrænir háskólar árið 2020, en í dag vantar um helming þar upp á. Fjármögnun í takt við okkar nágrannalönd er forsenda þess að háskólar geti sinnt þörfum framtíðarinnar og stutt við hagvöxt. En því miður er það svo að nýsamþykkt fimm ára fjárhagsáætlun stjórnvalda er í hróplegu ósamræmi við þessi markmið, því þar er litlu bætt við fjármögnun háskóla. Þetta verður að laga, samkeppnishæfni Íslands til framtíðar er að veði,“ sagði Ari Kristinn. Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já ehf. og formaður Viðskiptaráðs Íslands, veitti verðlaun Viðskiptaráðs fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi. Þau hlutu Ólafur Valur Guðjónsson, BA í lögfræði; Tómas Arnar Guðmundsson, BSc í hugbúnaðarverkfræði, Vaka Valsdóttir, BSc í sálfræði og Ari Páll Ísberg, BSc í heilbrigðisverkfræði.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira