Maður sem kveikti í lifandi kanínu má ekki lengur hafa dýr í umsjón sinni Bjarki Ármannsson skrifar 3. júní 2016 13:50 Kveikt var í kanínu í Garðabæ í ársbyrjun 2012. Vísir/Stefán
Karlmaður á sextugsaldri var í gær dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi við Héraðsdóm Norðurlands eystra fyrir ýmis brot á lögum um ávana- og fíkniefni, lögum um dýravernd og vopnalögum. Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa aflífað kanínu á „sérstaklega grimmilegan og þjáningafullan hátt“ með því að hafa bundið hana lifandi með vír við brunahana, hellt yfir hana bensíni og kveikt í henni í janúar í fyrra. Kanínuna hafði hann keypt í gæludýrabúð skammt frá. Maðurinn játaði þetta brot fyrir dómi. Ekki var fallist á það með skipuðum verjanda mannsins að ekki yrði byggt á því að aflífun kanínunnar hefði verið henni þjáningarfull, þar sem maðurinn hefði notað mikið bensín og hún drepist samstundis. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa þrívegis haft í fórum sínum allt að þrjátíu sentímetra langa hnífa og fyrir að hafa haft í vörslum sínum rúm tuttugu grömm af amfetamíni þegar lögregla hafði afskipti af honum í nóvember 2014. Í dómsorðum kemur fram að maðurinn hefur strítt við geðræn veikindi um langan tíma. Ekki var þó fallist á það með honum að hann yrði metinn ósakhæfur vegna þeirra. Ásamt skilorðsbundnu fangelsi var maðurinn ævilangt sviptur heimild til að hafa dýr í umsjón sinni.
Tengdar fréttir Hnífaáhugamaður á Akureyri keypti kanínu, batt við brunahana og kveikti í henni Maðurinn var með 31 cm langan hníf í vörslu sinni á bráðamóttöku Sjúkrahúss Akureyrar að því er segir í ákæru. 2. desember 2015 10:45 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Sjá meira
Hnífaáhugamaður á Akureyri keypti kanínu, batt við brunahana og kveikti í henni Maðurinn var með 31 cm langan hníf í vörslu sinni á bráðamóttöku Sjúkrahúss Akureyrar að því er segir í ákæru. 2. desember 2015 10:45