Teflir í 30 klukkutíma og styrkir börn í neyð Svavar Hávarðsson skrifar 6. maí 2016 07:00 Skákdrottningin Nansý Davíðsdóttir var á meðal fjölmargra andstæðinga Hrafns í Hörpu í fyrra. Mynd/HJ
Hrafn Jökulsson, rithöfundur og skákfrömuður, mun í dag og á morgun laugardag tefla skákmaraþon í Ráðhúsi Reykjavíkur og safna framlögum og áheitum, sem renna óskert til Fatimusjóðs og UNICEF í þágu sýrlenskra flóttabarna í neyð. Alls teflir Hrafn í 30 klukkustundir, en skemmtikraftar og listamenn troða upp á meðan maraþoninu stendur. Hrafn teflir frá klukkan níu að morgni til miðnættis báða dagana og hvetur alla til að koma og taka eina bröndótta til styrktar þessu góða málefni. Skákkunnátta er algert aukaatriði, að sögn Hrafns. Það eru Hrókurinn og Skákakademía Reykjavíkur, sem standa að viðburðinum í samvinnu við Fatimusjóðinn og UNICEF. Á síðasta ári tefldi Hrafn maraþon með svipuðu sniði í Hörpu. Maraþonið þá var hluti af landssöfnun Fatimusjóðs og UNICEF, sem alls skilaði 20 milljón króna framlagi í þágu sýrlenskra barna í flóttamannabúðum. Þar af skilaði maraþon Hrafns hátt í tveimur milljónum króna, og vonast hann til að gera enn betur núna. Öll framlög renna óskert í söfnunina, enda fer ekki króna í kostnað og vaskur hópur gefur vinnu sína. Margir hafa þegar boðað komu sína í Ráðhúsið, og segir Hrafn að það sé sannkallaður þverskurður þjóðarinnar. „Fólk á öllum aldri og úr öllum áttum hefur tekið áskorun minni í þágu málstaðarins. Þarna verða bæði skákmeistarar og byrjendur, listamenn og forsetaframbjóðendur. Þarna mæta jafnt leikskólabörn og eldri borgarar, en elsti áskorandinn er Kristín Anna Eggertsdóttir Claessen, sem verður níræð síðar á árinu og hún mætti líka í Hörpuna í fyrra." Þetta er fimmta skákmaraþonið sem Hrafn og Hrókurinn standa fyrir. Mest hefur hann teflt 250 skákir á 36 klukkustundum í þágu grænlenskra barna. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og tíminn leið hratt“, segir Hrafn um skákmaraþonið í Hörpunni í fyrra. „Það komu vissulega tímabil, þegar mest gekk á, sem mig var farið að sundla, en stemmningin var frábær og fyllti mig orku. Skák er náttúrlega svo skemmtileg, þannig að það eru forréttindi að geta teflt við fólk úr öllum áttum og látið gott af sér leiða," segir Hrafn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira