Graham Poll: Clattenburg giskaði þegar hann dæmdi vítið á Man City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. febrúar 2016 17:30 City-menn voru ekki sáttir með Clattenburg í leiknum gegn Tottenham í gær. vísir/getty
Graham Poll, fyrrum knattspyrnudómari, segir að Mark Clattenburg hafi gert stór mistök þegar hann dæmdi vítaspyrnu á Raheem Sterling í leik Manchester City og Tottenham á Etihad Stadium í gær. Staðan var markalaus í hálfleik en á 53. mínútu fékk Tottenham umdeilda vítaspyrnu eftir að fyrirgjöf Dannys Rose fór í Sterling. Clattenburg mat það sem svo að Sterling hefði fengið boltann í hendina sem var ekki að sjá í endursýningu. Harry Kane skoraði úr vítaspyrnunni og kom Tottenham yfir. Varamaðurinn Kelechi Iheanacho jafnaði metin á 74. mínútu en níu mínútum síðar tryggði Christian Eriksen tryggði Spurs sigurinn. Poll, sem var lengi í fremstu röð enskra dómara, segir að Clattenburg hafi einfaldlega giskað á að boltinn hafi farið í höndina á Sterling í leiknum í gær. „Mark Clattenburg er besti dómarinn í ensku úrvalsdeildinni en ég er hræddur um að hann hafi brotið hina gullnu reglu í dómgæslu þegar hann dæmdi víti á Man City,“ segir Poll í pistli sínum fyrir Daily Mail. „Gullna reglan er sú að stundum gerast atvik sem þú sérð ekki. Svoleiðis er það bara. En getur ekki, MÁTT ekki, dæma á eitthvað sem þú heldur að hafi gerst. „Í endursýningu sást að boltinn fór einfaldlega í bakið á Sterling. Clattenburg hlýtur að hafa giskað á þetta. Tottenham gæti unnið deildina vegna dómaramistaka,“ bætti Poll við og dró ekkert úr dramatíkinni. Eftir úrslit gærdagsins er Tottenham aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Leicester City á meðan City er sex stigum frá toppsætinu.
Enski boltinn Tengdar fréttir Pochettino: Stuðningsmennirnir eiga rétt á að láta sig dreyma Tottenham er aðeins tveimur stigum frá toppliði Leicester eftir leiki gærdagsins. 15. febrúar 2016 08:50 Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira
Pochettino: Stuðningsmennirnir eiga rétt á að láta sig dreyma Tottenham er aðeins tveimur stigum frá toppliði Leicester eftir leiki gærdagsins. 15. febrúar 2016 08:50