Pogba, Stones og Lewandowski fyrstir á dagskrá hjá Guardiola í Manchester Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. febrúar 2016 09:15 Paul Pogba fagnar marki gegn Chievo um helgina. vísir/getty
Þrátt fyrir að félagaskiptaglugganum í janúar var lokað í gærkvöldi eru ensku blöðin strax farin af stað með slúður fyrir sumarluggann og þá sérstaklega í tengslum við Manchester City vegna ráðningu nýs knattspyrnustjóra. Eins og greint var frá í gær lætur Manuel Pellegrini af störfum 30. júní og við starfinu tekur Spánverjinn Pep Guardiola, núverandi þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München. Enska blaðið Daily Mail heldur því fram að franski miðjumaðurinn Paul Pogba sé fyrstur á dagskrá hjá honum, en því er haldið fram að Guardiola fái væna summu til að versla fyrir á leikmannamarkaðnum í sumar. Pogba myndi þá snúa aftur til Manchester, en á yngri árum var hann á mála hjá Manchester United áður en Sir Alex Ferguson gafst upp á honum og hálfpartinn gaf hann til Juventus. John Stones er einnig á teikniborðinu hjá Guardiola sem ætlar að versla leikmenn fyrir 130 milljónir punda í sumar. Götublaðið The Sun heldur því svo fram að Guardiola ætli að taka Robert Lewandowski með sér til City frá Bayern, en pólski framherjinn hefur verið magnaður á leiktíðinni og skoraði fimm mörk í einum og sama leiknum síðasta haust. Manchester City gæti fengið samkeppni um Lewandowski frá Real Madrid, en The Sun heldur því fram að City sé tilbúið að borga 75 milljónir punda fyrir pólska landsliðsmanninn sem er næst markahæstur í þýsku 1. deildinni.
Enski boltinn Tengdar fréttir Pellegrini hættir hjá City og Pep tekur við Sílemaðurinn kveður Etihad-völlinn þegar tímabilinu er lokið í enska boltanum og Pep Guardiola tekur við. 1. febrúar 2016 13:11 Pellegrini: Ekki farið á bakvið mig Stjóraskiptin hjá Manchester City gerð í sátt og samlyndi við núverandi knattspyrnustjóra. 1. febrúar 2016 13:45 Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Sjá meira
Pellegrini hættir hjá City og Pep tekur við Sílemaðurinn kveður Etihad-völlinn þegar tímabilinu er lokið í enska boltanum og Pep Guardiola tekur við. 1. febrúar 2016 13:11
Pellegrini: Ekki farið á bakvið mig Stjóraskiptin hjá Manchester City gerð í sátt og samlyndi við núverandi knattspyrnustjóra. 1. febrúar 2016 13:45