Enginn fundur fór fram milli Manchester United og Guardiola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2016 09:00 Pep Guardiola. Vísir/Getty
Forráðamenn Manchester United hafa neitað þeim sögusögnum að félagið hafi fundað með Pep Guardiola um möguleikann á því að hann taki við liðinu af Hollendingnum Louis van Gaal. Hið virta fótboltablað France Football sló því upp að þessi fundur hjá Manchester United og Guardiola hafi farið fram í París í síðustu viku. BBC er aftur á móti með frétt í morgun um að Manchester United þvertekur fyrir að þessi fundir hafi farið fram á franskri grundu eða einhverstaðar annarsstaðar. Hinn 45 ára gamli Pep Guardiola er búinn að gefa það út að hann ætli að hætta með lið Bayern München í vor og hefur einnig viðurkennt það að hann hafi fengið nokkur tilboð frá enskum liðum en þangað vill hann fara næst. Nágrannar Manchester United í Manchester City þóttu líklegastir til að tryggja sér starfskrafta Pep Guardiola en hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Manchester United. Framtíð Louis van Gaal hefur verið í uppnámi vegna lélegs árangurs og hundleiðinlegrar spilamennsku en Hollendingurinn létti aðeins á pressunni með því að vinna erkifjendurna Liverpool um síðustu helgi. Manchester United er þessa stundina í fimmta sæti deildarinnar, aðeins tveimur sætum á eftir Tottenham sem situr í síðasta Meistaradeildarsætinu. Stuðningsmenn Manchester United fá eflaust stjörnur í augun að sjá Pep Guardiola orðaðan við félagið en hann hefur unnið ófáa titlana með bæði Barcelona og Bayern München. Það lítur þó út fyrir að United ætli að halda tryggð við Louis van Gaal enn sem komið er.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira